Spegillinn

Metinn ósakhæfur


Listen Later

Marek Moszczynski, sem var ákærður fyrir þrjú manndráp og tíu manndrápstilraunir með því að kveikja í húsi á Bræðraborgarstíg, var í dag metinn ósakhæfur. Héraðsdómur úrskurðaði að hann skuli sæta öryggisvistun á viðeigandi stofnun.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur kvartað til yfirkjörstjórnar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og telur að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hafi brotið prófkjörsreglur.
Dómur Hæstaréttar í tryggingamáli manns sem hlaut varanlega örorku eftir fall af reiðhjóli gæti haft víðtæk áhrif á tryggingafélögin og Sjúkratryggingar Íslands.
Þingmaður Pírata gagnrýnir harðlega þær aðgerðir Vinnumálastofnunar, og þar með stjórnvalda, að svipta hátt í 400 manns atvinnuleysisbótum fyrir að hafna boðum um störf. Félagsmálaráðherra segir aðgerðir stjórnvalda hafa gripið langflesta í faraldrinum.
Stífluð gömul borhola sem ekki hefur bært á sér í þrjátíu ár breyttist í goshver í fyrradag og hefur síðan gosið mörgum sinnum á klukkustund í hátt í þrjátíu metra.
Ráða þarf um 25 nýja lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu vegna styttingar vinnuvikunnar. Alls er gert ráð fyrir að ráða verði 75 nýja lögreglumenn á öllu landinu. Gert ráð fyrir að á ársgrundvelli verið varið um 900 milljónum króna vegna styttingar vaktavinnutímans hjá lögreglu, Landhelgisgæslunni og fangavörðum. Ekki er enn ljóst hvaða upphæðir koma í hlut hvers lögregluembættis. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Höllu Bergþóru Björnsdóttur. Heyrist í Sonju Ýr Þorbergsdóttur og Helgu Sigurðardóttur.
Nýlega dæmdi Landsréttur í hrunmáli sem varðar ábyrgð stjórnenda gamla Landsbankans. Málið varpar ljósi á ýmislegt annað, meðal annars eignarhald stærstu eigenda bankans, feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Sá þáttur kemur líka við sögu í hópmáli hluthafa í gamla Landsbankanum gegn Björgólfi Thor. Einnig að endurskoðunarfyrirtækið PriceWatherhouseCoopers greiddi þrotabúi Landsbankans 1,1milljarð króna gegn því að búið félli frá málsókn sem í alþjóðlegu samhengi er nokkuð einstök niðurstaða. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners