Spegillinn

Mikilvægt að hlusta á varnaðarorð


Listen Later

Fjármálaráðherra segist ánægður með þær úrbætur á reglugerð sem heilbrigðisráðherra hefur lagt fram um sóttkvíarhús. Ljóst var að nýja reglugerð þurfti til þegar Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að það stæðist ekki lög að senda fólk í sóttkví sem ætti í önnur hús að venda og þegar Landsréttur vísaði áfrýjun sóttvarnalæknis frá. Bjarni segir það alvarlegt mál þegar ríkið brýtur á rétti fólks með þessum hætti og því sé mikilvægt að hlusta á varnaðarorð
Dómarafélag Íslands segir óvarlegar fullyrðingar á borð við að dómstólar gangist fyrir aðför að sóttvörnum á óvissu- og hættutímum til þess fallnar að grafa undan stoðum réttarríkisins.
Móðir fjölfatlaðs manns furðar sig á hversu illa gekk að fá svör um hvaða forgangshópi hann tilheyrði, margir í svipaðri stöðu hafi þegar verið bólusettir.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að ekki sé hægt að stóla á sjálfboðaliða til framtíðar til að sinna gæslu og vöktun við gosstöðvarnar. Atvinnutækifæri gætu skapast eftir að björgunarsveitir hverfa á brott til annarra starfa.
Vísindamenn hafa ekki komist að niðurstöðu um hvernig flokka beri gosið í Geldingadölum. Við upphaf gossins voru nefnd líkindi við Kröfluelda og svo hafa gjarna verið nefnd dyngjugos og bent á dyngjuna Þráinsskjöld sem er rétt hjá gosstöðvunum. Dæmigerð gos á Reykjanesskaga eru hins vegar mjög lítil, segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði.
Sagt frá fundi Almannavarna í dag um hættur sem geta skapast við eldstöðvarnar á Reykjanesi. Heyrist í Elínu Björk Jónasdóttur, Magnúis Tuma Guðmundssyni, Þorsteini Jóhannssyni og Gunnari Guðmundssyni
Filippus prins og hertogi af Edinborg er látinn, 99 ára að aldri. Sigrún Davíðsdóttir í London sagði frá lífshlaupi prinsins.
Áhugi almennings á fjárfestingum og hlutabréfaviðskiptum hefur sjaldan verið meiri en nú. Mikið líf hefur verið á íslenskum hlutabréfamarkaði undanfarið ár, verðhækkanir hafa verið óvenjumiklar og fjöldi almennra hluthafa í kauphöllinni hefur tvöfaldast milli ára. En fjárfestingaheimurinn er einsleitur og það er mikilvægt að fá fjölbreyttari hóp að borðinu þegar áhugi fólks á fjárfestingum er að vakna á ný, að mati ungra kvenna sem hafa stofnað umræðuvettvang um fjárfestingar á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar leitast þær við að hvetja ungt fólk, sér í lagi konur, til að taka ábyrgð á eigin fé og fjárfesta. Þórhildur Þorkelsdóttir tók saman og ræddi við Anítu Rut Hilmarsdóttur.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners