Framlög til hjúkrunarheimila verða aukin um milljarð, samkvæmt fjáraukalagafrumvarpi sem lagt verður fram eftir helgi. Fjármálaráðherra segir að þetta sé tímabundin aðgerð.
Lyfjstofnun Evrópu heimilar að ungmenni á aldrinum 12 til 15 ára verði bólusett við kórónuveirunni með bóluefni frá Pfizer-BioNTech.
Jarðvegsfok síðustu daga hefur ekki verið meira síðan í Eyjafjallagosinu fyrir rúmum 10 árum. Mistrið er einna þéttast á Suðurlandi. Vonskuveður er víða á suðvestanverðu landinu.
Fyrrverandi bankastjóri gamla Landsbankans var í dag dæmdur skaðabótaskyldur vegna láns til eins aðaleigenda bankans. Slitastjórn gamla bankans fær þó aðeins 50 milljónir upp í nærri ellefu milljarða kröfu.
Mynd: Arnar Páll Hauksson / Arnar Páll Hauksson
Friðrik Jónsson, nýr formaður Bandalags háskólamanna, vill hefjast handa strax við að bæta, breyta og byggja upp bandalagið þannig að það þjóni betur fjölbreyttum verkefnum sem eru fram undan. Hann vill líka bæta vinnubrögð á íslenskum vinnumarkaði og stefnir að því að nýr kjarasamningur verði tilbúinn áður en núverandi samningur rennur út. Arnar Páll Hauksson talaði við Friðrik.
Norska lögreglan hefur kynnt nýjar vísbendingar um hverjir gætu hafað rænt Anne - Elizabeth Hagen fyrir nær þremur árum. Hún er enn ófundin. Nú telur lögregan að aðeins lítill hópur hámenntaðra tæknimanna, jafnvel úr fjármálaheiminum, hafi búið yfir nægri þekkingu til að skipuleggja svo torleystan glæp. Nú er þessara manna leitað. Gísli Kristjánsson sagði frá
Ein megin forsenda fyrir úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu, að mati þeirra sem studdu hana, var að Bretar gætu þar með samið um viðskipti við önnur ríki, óheftir af samflotinu við ESB. Deilur í Bretlandi um viðskiptasamning við Ástralíu sýna að það er ekki auðvelt að ákveða hvaða hagsmunir vegi þyngst. Sigún Davíðsdóttir sagi frá.