Spegillinn 29. nóvember 2022
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.
Órofa samstaða er meðal Atlantshafsbandalagsþjóðanna að veita Úkraínumönnum þann stuðning sem þarf í baráttunni við rússneska innrásarliðið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra segir að stuðningur geti verið með ýmsum hætti - svo sem að útvega þeim hlý föt í vetrarkuldum.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar líktu því við mannréttindabrot á Alþingi í dag að fólk þyrfti að bíða í mörg ár eftir að afplána fangelsisdóm. Helga Vala Helgadóttir (S) var málshefjandi sérstakrar umræðu, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) tók undir áhyggjur Helgu en Jón Gunnarsson (D) dómsmálaráðherra vonar að 250 milljónir sem bætt verður við fjárveitingar til fangelsa dugi til að bregðast við. Höskuldur Kári Schram tók saman.
Samninganefndir hafa setið við í allan dag hjá Ríkissáttasemjara en lítið fréttist af gangi viðræðna.
Þjóðverjar hafa gert fimmtán ára samning við Katara um kaup á milljónum tonna af jarðgasi. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.
Leikskólabörn á Akureyri fengu ekki að leika sér úti í dag vegna mikillar svifryksmengunar. Bæjaryfirvöld stefna á að fjölga loftgæðamælum í bænum til þess að fá betri mynd af stöðu mála. Ólöf Rún Erlendsdóttir ræddi við Andra Teitsson, formann umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar.
Nýr veruleiki blasir við sveitarfélögum, almenningi og fyrirtækjum um áramótin þegar breytingar á lögum um flokkun sorps og endurvinnslu taka gildi.
Öryggisverðir hafa verið við gæslu í Rimaskóla í Grafarvogi frá því í síðustu viku. Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segist skilja að brugðið hafi verið á það ráð en hert öryggisgæsla í skólum sé ekki stefna borgarinnar.
-----------
Embætti ríkissaksóknara í Úkraínu hefur tekið til rannsóknar ásakanir um að Rússar fremji stríðsglæpi í landinu. Andriy Kostin ríkissaksóknari segir um 49 þúsund ásaknir séu til rannsóknar. Ástandið í Úkraínu var aðalumræðuefnið á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja í Búkarest í Rúmeníu í dag. ?Rætt var við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur eftir fundinn. Ásgeir Tómasson tók saman.
Nýr veruleiki blasir við sveitarfélögum, almenningi og fyrirtækjum um áramótin þegar ný lög um flokkun sorps og endurvinnslu taka gildi. Kristján Sigurjónsson ræddi við Eygerði Margrétardóttir, sérfræðing sambands íslenskra sveitarfélaga í umhverfis- og úrgangsmálum.
Stærsta eldfjall í heimi gýs nú á Havaí eftir áratuga hlé.