Stríðið í Úkraínu hefur valdið verulegri hækkun á olíu og gasi.Norðmenn hafa áhyggjur. Óvæntir peningar velta inn í sjóði landsmanna, og enginn veit hvað á að gera við þá. . Tekjur ríkissjóðs af orkusölu gætu sexfaldast. Gísli Kristjánsson reifar hér hvað er til ráða.
Íslenskir menn eru skráðir á síður sem á Norðurlöndum eru taldar sykurhúða grimman og ljótan heim vændis, og geta tælt ungt fólk, jafnvel börn inn í hann. Tilgangurinn sagður að koma á tengslum milli eldri og gjafmildra manna, sykurpabba við ungt fólk. Í speglinum í gær var fjallað um hve erfitt hefur reynst víða í nágrannalöndunum að láta eigendur síðnanna sæta ábyrgð. Hver er staðan hér og brjóta síðurnar í bága við íslensk lög? María Rún Bjarnadóttir verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá Ríkislögreglustjóra segir ekki einfalt að svara því afdráttarlaust hvort þetta sé vændi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Maríu.
Fóstur í móðurkviði eru sérlega viðkvæm fyrir hormónaraskandi efnum sem finnast allt í kringum okkur. Rannsóknir í Danmörku sýna að launeistu aukast mjög, þar sem eistun ganga ekki alveg niður í punginn. Jafnframt virðist vera færast í vöxt að þvagrásin sé ekki alveg rétt mynduð og eistnakrabbamein í ungum mönnum eykst. Fjallað var um hormónaraskandi efni í Kveik á dögunum. Bjarni Rúnarsson ræddi þessi mál við Ragnheiði Bachman ljósmóður á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu sem starfar einnig við mæðravernd.
Helstu atriði frétta:
Matur, vatn og lyf eru nánast á þrotum í hafnarborginni Mariupol. Alþjóða Rauði krossinn segir dæmi um að fólk ráðist á hvert annað til að útvega sér mat.
Stríðsátökin í Úkraínu valda hækkun á olíuverði. Það eykur hag Norska olíusjóðsins. Tekjur ríkissjóðs af orkusölu gætu sexfaldast.
Það er orðið mjög erfitt að halda Landspítalanum gangandi í samræmi við þarfir sjúklinga, segir yfirlæknir bráðamóttöku Landspítalans.
Vel gengur að hreinsa meira en níu þúsund lítra af díselolíu sem láku úr olíutanki Orkubús Vestfjarða út í tjörnina og höfnina á Suðureyri fyrir helgi. Teymisstjóri mengunarvarna hjá Umhverfisstofnun segir nokkurra daga og jafnvel vikna vinnu framundan.
Það hefur mistekist að ná sátt um orkumálin að mati háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Auka þurfi orku og nýta hana betur til að orkuskipti geti orðið.
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson.
Tæknimaður: Mark Eldred.
Stjórn útsendingar frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir.