Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir til skoðunar að auka viðbúnað í austurhluta Evrópu vegna vígvæðingar Rússa. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra segir að nýr veruleiki blasi við í Evrópu, allavega í bili. Birta Björnsdóttir tók saman.
Það er ekki verið að efla heilsugæsluna og rangt af stjórnvöldum að halda því fram. Þetta segir Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands. Bjarni Pétur Jónsson ræddi við hana.
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna segir að rafbyssur gætu bæði bætt öryggi lögreglumanna og borgara. Haukur Holm ræddi við hann.
Langanesbyggð, viðbragðsaðilar og Heilbrigðisstofnun Norðurlands hafa undirritað viljayfirlýsingu um að komið verði á fót björgunarmiðstöð á Þórshöfn. Jónas Egilsson sveitarstjóri segir til mikils að vinna. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hann.
------------
Undanfarið ár hefur fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um fimmtung og framboðið dregist skarpt saman síðustu vikur. Faraldurinn hefur aukið eftirspurn eftir sérbýli segir Karlotta Halldórsdóttir, hagfræðingur hjá Húsnæðis og Mannvirkjastofnun. Bjarni Rúnarsson talaði við hana.
Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræða nú um öryggismál í Evrópu og staðan í Úkraínu er þar efst á baugi. Hallgrímur Indriðason ræddi við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Mörg hundruð njósnarar kunna að vera virkir í Svíþjóð, að mati sænsku leyniþjónustunnar. Tveir bræður, sem voru hátt settir innan sænskra leyniþjónustustofnanna, sitja nú í varðhaldi, grunaðir um alvarlegar njósnir fyrir erlent ríki. Kári Gylfason í Gautaborg sagði frá.