Spegillinn

Palestína, stuðningur ESB við Úkraínu og yfirmaður Úkraínuhers


Listen Later

1. febrúar 2024
Sögulegar og pólitískar ástæður fyrir því að palestínska flóttamannahjálpin er að mestu fjármögnuð af nokkrum öflugum Vesturlöndum. Það gildir líka um ástæður þess að hin vellauðugu olíuríki við Persaflóann skuli ekki einfaldlega taka við keflinu undir þeim aðstæðum sem nú eru uppi, og líka því, að Egyptar vilja ekki opna landamærin að Gaza og taka á móti þeim milljónum Palestínumanna sem þar búa við sárustu neyð. Magnús Þorkell Bernharðsson heldur áfram að skýra nokkrar helstu flækjurnar í þeirri skelfilegu stöðu sem uppi er fyrir botni Miðjarðarhafs.
Ungverjar létu í dag af andstöðu sinni við áframhaldandi stuðning Evrópusambandsins við stríðsrekstur Úkraínumanna gegn Rússum. Á þessu er fyrst og fremst ein skýring að mati stjórnmálaskýrenda: Viktor Orban, forseti Ungverjalands, taldi sig ekki komast lengra í andófi sínu gegn stefnu ESB í þessu máli og lúffaði, til að tryggja landi sínu þá 50 milljarða Evra, sem Ungverjar hafa ekki fengið úthlutað úr þróunarsjóði sambandsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel.
Fjölmiðlar í Úkraínu hafa síðustu daga fullyrt og vitnað í ónafngreinda heimildarmenn innan stjórnkerfisins að Volodymyr Zelensky forseti vilji losna við Valerii Zaluzhny hershöfðingja sem æðsta yfirmann hersins. Nokkrir þingmenn á úkraínska þinginu hafa einnig gefið í skyn að yfirmannaskipti liggi í loftinu og Zaluzhny hafi verið boðið að taka við stjórn Þjóðaröryggis- og varnarmálaráðs landsins. Ásgeir Tómasson segir frá.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners