Spegillinn 24. júní 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Aukin þátttaka almennings í hlutabréfaviðskiptum er ein helsta ástæða óvenjulegar mikillar veltu á árinu. Þetta segir Magnús Harðarsson, forstjóri Kauphallarinnar. Hann býst við að viðskipti með hlutabréf í Íslandsbanka verði áfram lífleg.
Yfir tuttugu þúsund kórónuveirusmit voru greind í Rússlandi síðastliðinn sólarhring.
Matvælastofnun, MAST, veitti í vikunni fjórum fyrirtækjum og félögum rekstrarleyfi til fiskeldis.
Formaður Geðhjálpar segir að framburður söngkonunnar Britney Spears, sem nú freistar þess að fá sjálfræðissviptingu sinni hnekkt, veki uppp áleitnar spurningar sem einnig eigi við hér á landi. Rætt við Héðinn Unnsteinsson, formann Geðhjálpar
Framkvæmdastjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur segir að grípa verði í taumana vegna þess hve mjög hefur dregist að afgreiða þriðja áfanga rammaáætlunar. Seinagangurinn sé byrjaður að standa starfseminni fyrir þrifum. Arnar Páll Hauksson, ræðir við Hildigunni Thorsteinsson, framkvæmdastjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur
Það að rammaáæltun hefur ekki verið afgreidd frá Alþingi hefur ekki með vinnu við rammaáætlun að gera. Þetta segir
Þóru Ellen Þórhallsdóttur prófessor sem starfað hefur við rammaáætlun þau 20 ár sem unnið hefur verið við hana. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Þóru Ellen