Fimmtudagur 19. mars
Efnahagsóvissa, ESB, eldhugi og áföll
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, bregst við umælum fjármálaráðherra í dag um að of miklar launahækkanir séu aðalhvati verðbólgunnar. Finnbjörn segir í samtali við Björn Þorláks stöðuna ekki bjarta og ræðir málin með gagnrýnum hætti. Magnús R. Einarsson leiðsögumaður og fyrrum dagskrárgerðarmaður til áratuga á Rúv, ræðir samanburð lífskjara á Íslandi og á meginlandi Evrópu. Honum finnst umræða stjórnarandstæðinga heimóttarleg eins og kemur fram í samtali hans við Björn Þorláks. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Svein Rúnar Hauksson lækni um ævi, störf og áhugamál. Dr. Sigrún Sigurðardóttir hefur skrifað bók um áföll sem er ansi skýr og aðgengileg almenningi. Hún ræðir bókina og farangurinn sem mörg okkar bera í spjalli við Björn Þorláks.