Félagsdómur kveður ekki upp dóm í dag um hvort boðun Eflingar á verkfalli hótelþerna á föstudaginn er lögmæt eða ekki.
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir að það hafi verið mikil tímamót þegar Alþingi samþykkti í síðustu viku svokallað aflandskrónufrumvarp. Hægt sé að binda vonir við að vextir lækki og það sé einhver mesta kjarabót sem íslensku launafólki standi til boða.
Héraðssaksóknara bárust tólf hundruð tilkynningar í fyrra um grunsamlegar fjármunafærslur og peningaþvætti og hefur fjöldinn áttfaldast á undanförnum fjórum árum.
Viðskiptajöfnuður Bandaríkjanna við útlönd var í fyrra sá óhagstæðasti í áratug. Bandaríkjaforseti hefur barist fyrir því með oddi og egg frá því að hann tók við völdum að draga úr honum, en ekkert orðið ágengt.
Málverkafölsunarmálið sem kom upp í síðustu viku er til skoðunar í menntamálaráðuneytinu. Ráðherra segir málið reiðarslag.
Fyrir tíu árum var ákveðið að fara hér hina svokölluðu sænsku leið, vændiskaup voru gerð ólögleg en ekki sala á vændi. Við veltum fyrir okkur hvort sænska leiðin sé alltaf sú vænlegasta til að berjast gegn vændi. Rætt við Sólveigu Önnu Bóasardóttur, Simon Häggström og Öldu Hrönn Jóhannsdóttur.
Dómsmálaráðherra boðar breytingar á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, og vill að ákvæði um að Alþingi veiti ríkisborgararétt með lögum falli brott. Lögfræðingur telur með þessu þrengt mjög að getu fólks af erlendum uppruna til að verða íslenskir ríkisborgarar. Rætt við þær Sigríði Á. Andersen og Claudie Wilson.