Spegillinn

Salan á Íslandsbanka og lífeyrismál


Listen Later

Síðdegis í gær var tilkynnt um sölu á rúmlega fimmtungs hlut ríkisins í Íslandsbanka. Eftirspurn var mikil og fékk ríkið 52 og hálfan milljarð fyrir hlutina sem voru seldir og á nú 42,5% í bankanum; ekki kemur í ljós hverjir keyptu fyrr en í næstu viku en hlutirnir voru boðnir stofnfjárfestum ekki almenningi.
Már Wolfgang Mixa, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, segir ýmislegt skýra það að þessu sinni séu hlutir boðnir fagfjárfestum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Má.
Alltof margir spá lítið sem ekkert í lífeyrisréttindum sínum og fólk er helst til kærulaust með að ganga úr skugga um að allt sé með felldu. Lífeyrisréttindi sambúðarfólks geta verið misjöfn og það þarf að passa tímanlega að réttindi hvers og eins séu tryggð. Bjarni Rúnarsson ræddi við Þóreyju S. Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Landssambands lífeyrissjóða og fyrst var spurt hverju fólk flaskar helst á í lífeyrismálum.
Helstu atriði frétta:
Fjármálaráðherra segir að við söluna á bréfum í Íslandsbanka hafi áhersla verið lögð á að fá kaupendur að borðinu sem ekki væru að leita að skjótfengnum gróða.
Tvennt var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eftir sprengingu í verksmiðju á Grenivík síðdegis í dag. Báðir eru mikið slasaðir.
Íbúum úkraínsku borgarinnar Chernihiv er haldið í gíslingu af rússneska hernum að sögn umboðsmanns mannréttindamála í Úkraínu. Framkvæmdastjóri NATO boðar aukinn viðbúnað í Austur-Evrópu.
Fráfarandi formaður Starfsgreinasambandsins vonast til að öldur innan verkalýðshreyfingarnar lægi á næstunni. Þar geti eftirmaður hans lagt hönd á plóg.
Frá og með fyrsta apríl verða hraðpróf hjá einkafyrirtækjum ekki lengur ókeypis.
Spegillinn 23. mars 2022.
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson.
Tæknimaður: Mark Eldred.
Stjórn fréttaútsendinga: Valgerður Þorsteinsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners