Föstudagur 21. mars
Frelsið er yndislegt #13 - Ungmenni í vanda - hvað er til ráða?
Börn eru í dag neyðarvistuð í fangaklefum í Hafnarfirði. Umboðsmenn, bæði barna og Alþingis, hafa gert alvarlegar athugasemdir við slíkt fyrirkomulag (hvorugar þáðu þó boð Afstöðu um að mæta í þáttinn). Barnamálaráðherra hefur sagt að hætt verði að nota fangaklefa til að vista börn um mánaðamótin. Meðan á tökum þáttarins stóð tilkynnti ráðherra barnamála um afsögn sína.
Gestir þáttarins eru Gudmundur Fylkisson, lögregluþjónn og Davíð Bergmann, unglingaráðgjafi hjá Fjölsmiðjunni.
Stjórnendur þáttarins eru: Íris Ósk Ólafsdóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
Hægt að ná sambandi við Afstöðu í síma 556-1900 og netfangið [email protected]. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211.