Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Miðvikudagur 3. september - Kastljósumræðan, hafstraumar, Sjálfstæðisflokkurinn, Reynsluboltar og mótmælendur
    Miðvikudagur 3. september
    Kastljósumræðan, hafstraumar, Sjálfstæðisflokkurinn, Reynsluboltar og mótmælendur
    Það veldur umtalsverðri vanlíðan hjá aðstandendum trans fólks að hlusta á vanstillta orðræðu Snorra Mássonar og sjá undirtektirnar. Þetta segir Þórgnýr Dýrfjörð, faðir transeinstaklings í samtali við Björn Þorláksson. Stefán Jón Hafstein sem hefur skrifað mikið um umhverfismál ræðir ögurstundina sem nú er uppi. Miklu varðar að Íslendingar ekki síður en aðrar þjóðir breyti hegðun sinni til að vernda hlýja hafstrauma og fleira. Björn Þorláks ræðir við Stefán.
    Reynsluboltar Sigurjóns Magnússonar verða á dagskrá en þar ræðir folk þjóðmálin. Gestir þáttarins eru Guðmundur Þ. Ragnarsson, Vilborg Oddsdóttir, Margrét Sanders og Þorsteinn Sæmundsson. Lögregluaðgerðir við Hlemm-Mathöll. María Lilja ræddi við vitni. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður segir sinn gamla flokk, Sjálfstæðisflokkinn óþekkjanlegan. Hann segir minnkandi ítök valdaflokkanna gömlu eiga sér skýringar sem hann ræðir í samtali við Björn Þorláksson. Og við endum þáttinn á ofbeldi gegn mótmælendum. Daníel Thor Bjarnason, Helga Ögmundardóttir og Margrét Baldursdóttir eru öll virk í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu. Þau lýsa fyrir Maríu Lilju hvernig þau hafa öll orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á mótmælum undanfarið og hvernig lögregla og fjölmiðlar eiga þátt.
    4 hr 16 min
  • Rauða borðið 2. sept - Hafstraumar, popúlismi, Píratar, rasismi, verðleikasamfélag og þétt byggð
    Þriðjudagur 2. september
    Hafstraumar, popúlismi, Píratar, rasismi, verðleikasamfélag og þétt byggð
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ræðir við Gunnar Smára um fyrirsjáanlegt hrun hagstrauma í Atlandshafi sem mun leiða einskonar ísöld yfir Ísland. Er þetta mögulegt, ólíklegt eða næsta víst.
    Helen María Ólafsdóttir, öryggissérfræðingur varar við því að orðræða og framkoma Snorra Mássonar í Kastljósi í gærkvöld sé undanfari einhvers annars og mun alvarlegra. Hún ræðir við Maríu Lilju.
    Fyrirhugaðar eru róttækar breytingar á stjórnskipun pírata. Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, vill að hvorki sósíalistar, VG né píratar bjóði fram til að þrýsta á umbætur svo að fylgisþröskuldur verði lækkaður. Björn Þorláks ræðir við hann. Sóley Lóa Smáradóttir, nemi skrifaði áhrifamikinn pistil á dögunum sem farið hefur víða um öráreiti og hversdags-fórdóma sem brúnir og svartir Íslendingar verða fyrir. Sóley ræðir við Maríu Lilju um leiðir að betra samfélagi fyrir öll. Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki ræðir um verðleikasamfélagið við Gunnar Smára; hugmyndina um að þau sem auðgast og ná langt geri það vegna eigin verðleika. Og þau sem eru fátæk og óséð séu það vegna skorts á verðleikum. Einar Sveinbjörn Guðmundsson varaborgarfulltrúi Flokks fólksins telur að þétting byggðar hafi verið of mikil í borginni. Hann telur óvarlegt að reikna með minni bílaumferð í samtali við Björn Þorláks.
    3 hr 41 min
  • Rauða borðið 1. sept - Verðbólga, sósíalistar, Brics, Gufunesmálið og leigubílar
    Mánudagur 1. september
    Verðbólga, sósíalistar, Brics, Gufunesmálið og leigubílar
    Stefán Ólafsson prófessor og ráðgjafi Eflingar fer yfir stöðuna í efnahagsmálum í samtali við Gunnar Smára. Virkar hávaxtastefna Seðlabankans, mun verðbólgan éta upp kaupmáttinn og þarf stóraðgerðir í húsnæðismálum? Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi svarar fyrir vantrauststillögu sem borin var upp gegn henni af samflokksmönnum úr Sósíalistaflokknum fyrir helgi. María Lilja ræðir við hana. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer í samtali við Gunnar Smára yfir fund leiðtoga Kína, Indlands og Rússlands í kjölfar þess að ríkisstjórn Trump lagði refsitolla á Indland. Mun sú aðgerð veikja stöðu Bandaríkjanna og í raun styrkja stöðu Rússlands? Ákveðin skautun er að verða í afstöðu Íslendinga til ofbeldismála. Þetta segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur en hann ræðir Gufunesmálið svokallaða, sumpart mjög sérstakt mál, í samtali við Björn Þorláks. Ekki er allt sem sýnist í umræðunni um starfsemi leigubíla segir framkvæmdastjóri og lögmaður hjá Hopp. Vandinn sé meintur og hreint ekki einyrkjum eða útlendingum um að kenna. María Lilja ræðir við Daníel Thors, framkvæmdastjóra hjá Hopp leigubílum.
    3 hr 26 min
  • Synir Egils 31. ágúst - Efnahagur, orka, Grænland, stríð og meiri orka
    Sunnudagurinn 31. ágúst
    Synir Egils: Efnahagur, orka, Grænland, stríð og meiri orka
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þingkonurnar Ása Berglind Hjálmarsdóttir í Samfylkingu, Halla Hrund Logadóttir í Framsókn og Sigríður Á. Andersen í Miðflokki og ræða verðbólgu, vexti og ríkisfjármál, vindmyllur og orkumál, stríð og engan frið í útlöndum, ásælni Trump á Grænlandi og þingstörfin í sumar og vetur. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni og fá síðan Hörð Arnarson forstjóra Landsvirkjunar til að ræða stöðu fyrirtækisins, hækkandi raforkuverð til almennings, þörf á virkjunum, varaafl vegna vindorku og fleira.
    2 hr 11 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Jónsdóttir
    Laugardagur 30. ágúst
    Helgi-spjall: Guðrún Jónsdóttir
    Guðrún Jónsdóttir, fyrrum talskona Stígamóta, fagnar dómi mannréttindadómstólsins og lýsir baráttunni á bak við þann sigur, segir frá æsku sinni og uppruna, foreldrum sínum og hvaða áhrif þeir höfðu á líf hennar og persónuleika, dásemd þriðja æviskeiðsins og hvernig þeim lyndir saman, náttúrubarninu og baráttukonunni sem búa saman innra með Guðrúnu.
    1 hr 45 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 35
    Föstudagur 29. ágúst
    Vikuskammtur: Vika 35
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bergsveinn Sigurðsson sjónvarpsmaður, Eva Bjarnadóttir teymisstjóri innanlandsdeildar UNICEF, Greipur Gíslason ráðgjafi og stjórnandi Tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið og Ragnheiður Guðmundsdóttir stjórnmálafræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af sigrum í mannréttindabaráttu, glæpamálum, háum vöxtum, hjaðnandi verðbólgu, stríð og engum friði.
    1 hr 31 min
  • FRÉTTATÍMINN 28. ágúst
    Fimmtudagur 28. ágúst
    FRÉTTATÍMINN
    Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og María Lilja segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
    46 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners