Spegillinn

Samþjöppun í sjávarútvegi, jarðskjálftar og leiðtogaráð Evrópusambands


Listen Later

Forsætisráðherra Ungverjalands segir ekkert samkomulag liggja fyrir um að ríki Evrópusambandsins hætti að flytja inn olíu frá Rússlandi. Hann kennir framkvæmdastjórninni um stöðuna sem upp er komin. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Það er meinsemd að ekki sé augljóst hvernig samþjöppun í sjávarútvegi er háttað, segir matvælaráðherra. Samráðsnefnd og sérfræðingahópur hefjast handa á morgun við að greina samþjöppunina.
Lögreglan á Vestfjörðum gróf í dag upp líkamsleifar manns í kirkjugarði sem talinn var hafa farist í bílveltu fyrir nærri 50 árum. Grunur leikur á að málið hafi ekki verið nægilega rannsakað á sínum tíma.
Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Skútustöðum í Mývatnssveit var formlega opnuð í dag. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Guðlaug Þór Þórðarson.
Það var mikill fögnuður á Akureyrarflugvelli í dag þegar þota akureyska flugfélagsins Niceair lenti þar í fyrsta sinn. Ágúst Ólafsson ræddi við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson.
-------------------------------
Jörð hefur skolfið noðrur í landi í dag. Skjálfti Jarðskjálfti fjórir komma einn að stærð varð um átta kílómetra norður af Gjögurtá á tíunda tímanum í morgun og annar litlu minni á svipuðum slóðum í nótt. Og Norðlendingar fundu vel fyrir skjálftunum. Kristján Sigurjónsson talaði við Freystein Sigmundsson jarðeðlisfræðing.
Leiðtogaráð Evrópusambandsins sat í dag á rökstólum og fjallaði um hvernig hætta mætti innflutningi olíu og gass frá Rússlandi. Illa hefur gengið að ná samkomulagi um aðgerðirnar og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sagðist í morgun ekki bjartsýn á að samstaða næðist á fundum í dag og á morgun um sjöttu refsiaðgerðirnar vegna innrásar Rússa í Úkraínu í febrúar, þar steytir á banni við olíukaupum af Rússum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Brynju Huld Óskarsdóttur.
Ringulreiðin fyrir utan Þjóðarleikvanginn í París fyrir úrslitaleik Liverpool og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í fótbolta á laugardagskvöld ætlar að draga dilk á eftir sér. Kristján Sigurjónsson sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

134 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

23 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

41 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners