Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Sigurður Helgi Pálmason og Viktoría Hermannsdóttir
    Þau Sigurður og Viktoría segja frá nyjum sjónvarpsþætti þar sem fjallað er um gamla muni, þau segja að víða leynast munir sem við fyrstu sýn þykja ekki merkilegir en kunna þó að segja heilmikla sögu.
    Áhorfandinn er leiddur inn í heim íslenskrar sögu og sagna á óhefðbundinn hátt.
    40 min
  • Þorgeir Tryggvason
    Áhugaleikhúsið Hugleikur tók við Þorgeiri Tryggvasyni um leið og hann kom til Reykjavíkur eftir útskrift frá MA, og það sem meira er þar hitti hann tilvonandi eiginkonu sína Huldu B Hákonardóttur. Þorgeir ræðir áhugaleikhús, ljótu hálfvitana auðvitað og segir frá leikritinu Gestagangur sem hann er að leikstýra um þessar mundir, leikritið er hádramatískur gleðisöngurleikur eftir Þórunni Guðmundsdóttur.
    40 min
  • Hallveig Rúnarsdóttir klassísk söngkona
    Hallveig er alin upp í kór, og segir að þar hafi hún lært að hlusta og syngja með eyranu. Hún vissi snemma að hún ætlaði að leggja sönginn fyrir sig og hefur aldrei séð eftir því. Hún segir frá tónleikaferðalagi til Kína sem hún er að fara í og einnig frá sönghópnum Cantoque Ensemble og Barokkbandinu Brák sem munu leiða saman hesta sína í fyrsta sinn til að flytja íslenskum háheyrendum vandaðan upprunaflutning á Jóhannesapassíu eftir J. S. Bach.
    40 min
  • Friðrik Erlingsson rithöfundur
    Þegar Friðrik Erlingsson heimsækir grunnskólabörn sem hafa lesið bók hans Benjamín Dúfu fær hann undantekningalaust spurninguna, "Af hverju léstu hann deyja" Sagan um Benjamín dúfu og vini hans er ein vinsælasta barnabók síðari tíma og hefur skilið eftir sig djúp spor hjá nokkrum kynslóðum íslenskra lesenda. En Friðrik hefur skrifað fleiri bækur og hann segir frá því þegar hann ákvað að endurútgefa bókina Góða ferð ,Sveinn Ólafsson sem kom út árið 1998 og hlaut mikið lof fyrir. Bókin hefur komið út bæði vestan hafs og austan , en Fririk hefur lengi hugsað sér að gefa út þessa bók aftur þar sem við fylgjumst með Sveini sem vaknar að morgni þettánda afmælisdagsins og í veröld hans eru engir snjallsímar, tölvur og internet og litasjónvarpið er stórkostleg tækninýjung
    40 min
  • Eyjólfur Eyjólfsson óperusöngvari
    Það birtir yfir andliti Eyjólfs þegar hann segir frá Langspili og segir að hljómur þess sé dularfullur og fallegur og rétt eins og hann komi úr annari veröld. Eyjólfur er í þjóðfræði og er að skrifa mastersritgerð um þátt langspils í tónlistarsögu sem hugsanlega hefur komi til Íslands með hansakaupmönnum. Eyjólfur segir frá Langspilshátíð í Flóa en skólabörnin þar hafa smíðað langspil undir hans leiðsögn og hafa haft mikin áhuga á því verkefni.
    40 min
  • Gissur Páll Gissurarson og Árni Heiðar Karlsson
    Gissur Páll og Árni Heiðar voru að gefa út geisladisk með sönglögum og ræða samstarfið, en samstarf þeirra félaga spannar rúman áratug og hefur það verið afar farsælt. Þeir hafa nú tekið upp brot af því besta því samstarfi gegnum árin sem kemur út á geisladisknum Við nyrstu voga en á honum er að finna íslensk sönglög í þeirra túlkun.
    40 min
  • Bjarni Hafþór Helgason rithöfundur og lagasmiður
    Bjarni var að skrifa sína fyrstu bók, smásagnasafnið, Tíma til að tengja. Hann segi frá þessum sögum og rifjar upp þegar hann fékk 3,0 í efnafræði í menntaskólanum og ákvað þá ð læra að læra. Bjarni er með PArkinson og segir frá því og hvernig hann tekst á við það verkefni.
    40 min
  • Christopher Lund ljósmyndari
    Christopher fékk fyrstu myndavél fimm ára gamall. Ljósmyndun varð snemma hluti af lífi hans þar sem faðir hans er ljósmyndari. Á æskuárum sínum ferðaðist hann um allt land með honum auk þess sem við flugum í lítlli Cessnu til að taka loftmyndir. þannig fékk hann einstakt tækifæri til að sjá landið bæði úr lofti og í nærmynd og eignast þetta dýrmæta samband. Christopher segir einnig frá því þegar hann fór í göngu og kynnist ástinni, en í dag er hann giftur Mariu Ellingsen leikkonu og segir brosandi frá brúðukaupi þeirra sem haldið var í Færeyjum.
    40 min
  • Ragga Nagli
    Ragnhildur Þórðardóttir er landsþekkt sem Ragga nagli og er virk á samfélagsmiðlum undir því nafni þar sem hún skrifar um heilsu á mannamáli. Ragga er búsett í Kaupmannahöfn, en heldur tryggð við Ísland, kemur reglulega hingað og heldur fyrirlestra um heilsu. Hún segir frá lífi sínu, og ástinni og lýsir því þegar hún sá tilvonandi eiginmann sinn í fyrsta skipti.
    40 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

6 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners