Ég þurfti að fá miðil sem setti salt undir rúmið og blessaði allt. Hún andaði alveg ofan í hálsmálið á mér,? segir María Ellingsen leikkona, sem lék Agnesi Magnúsdóttur í samnefndri kvikmynd, og fann fyrir nærveru hennar á meðan. Hún hefur barist fyrir umhverfisvernd og lært að bera óttablandna virðingu fyrir náttúrunni sem getur verið yndislega skelfileg.
Myndin Agnes, í leikstjórn Egils Eðvarðssonar, var frumsýnd 1995 og síðan María lék Agnesi í myndinni hafa þær að einhverju leyti fylgst að. María var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónarsdóttur í Segðu mér á Rás eitt. Hún sagði meðal annars frá baráttu sinni fyrir náttúrunni, draugaganginum, leiklistinni og móðurhlutverkinu.