Spegillinn

Segja upp 315 manns


Listen Later

Airport Associates tilkynnti í dag um uppsagnir þrjú hundruð og fimmtán starfsmanna. Forstjórinn segir að unnið sé að því að skipuleggja starfsemi fyrirtækisins upp á nýtt eftir gjaldþrot Wow air. Stórum hluta þeirra sem sagt var upp verði boðið starf áfram á breyttum vöktum og í breyttu starfshlutfalli.
Hópuppsagnir sem ná til um tvö hundruð manns hjá fyrirtækjum sem ekki starfa í ferðaþjónustu voru einnig tilkynntar til Vinnumálastofnunar.
VR ætlar að lána 250 félagsmönnum sínum sem störfuðu hjá WOW air, jafnvirði þeirra launa sem þeir hefðu fengið um mánaðamótin.
Forseti ASÍ hefur áhyggjur af ástandinu á vinnumarkaði vegna gjaldþrots WOW air. Hún segir að ábyrgð stjórnvalda sé mikil og nú sé tími til að grípa til samfélagslegra lausna.
Theresa May forsætisráðherra Breta varð í dag undir í þinginu í þriðja skipti í atkvæðagreiðslu um útgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Sem fyrr ríkir óvissa um útgönguna, bæði ferlið og dagsetninguna.
Innflytjendur hafa að jafnaði 8 prósent lægri laun en innlendir samkvæmt greinargerð Hagstofu Íslands.
Forseti ASÍ hefur áhyggjur af ástandinu á vinnumarkaði vegna gjaldþrots WOW air. Hún segir að ábyrgð stjórnvalda sé mikil og nú sé tími til að grípa til samfélagslegra lausna. Hún varar hins vegar við heimsendaspám og ítrekar að ekki sé um annað efnahagshrun að ræða. Krafan um mannsæmandi laun sé enn í fullu gildi. Arnar Páll Hauksson talar við Drífu Snædal.
Breska þingið felldi í dag, í þriðja skiptið, útgöngusamning Theresu May forsætisráðherra Breta við Evrópusambandið. May fær tæplega tækifæri til að reyna aftur, sem fyrr er óvissan algjör. Í næstu viku mun þingið freista þess að finna aðrar leiðir en löng frestun útgöngu og - eða þingkosningar gætu blasað við. Sigrún Davíðsdóttir.
Það er víðar en á Íslandi sem menn velta fyrir sér sambandi sólar, klukku og birtu. Í Evrópu stefnir í að hætt verði að færa klukkuna til, vor og haust, en þó eru ekki allir á eitt sáttir um hvort, hvernig og hvenær það skuli gert. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners