Spegillinn

Sett í kosningagír og breytt lögsaga vegna loftslagsbreytinga


Listen Later

Rúmar þrjár vikur eru þar til kosið verður til sveita- og bæjarstjórna, laugardaginn 14. maí. Borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík eru þær viðamestu, enda langstærsta sveitarfélagið. Á morgun hefjast framboðsfundir á Spegilstíma á rás tvö og á vefnum ruv.is þar sem frambjóðendur í stærstu sveitarfélögunum takast á um helstu kosningamálin. Frambjóðendur í Kópavogi ríða á vaðið á morgun, síðasta vetradag. Á föstudag verður kosningafundur á Akureyri, á mánudag í Reykjavík og svo framvegis. Eva Marín Hlynsdóttir stjórnmálafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands segir kosningabaráttuna varla hafna. Það sé svo sem gömul saga og ný að kosningabarátta fyrir komandi kosningar hverju sinni þyki með eindæmum daufleg, en svo geti allt farið snögglega í gang. Kristján Sigurjónsson ræddi við Evu Marín.
Hækkandi sjávarstaða og breytingar á strandlengju landsins vegna loftslagsbreytinga gætu haft áhrif á efnahagslögsögu Íslands. Réttarstaða íbúa eyja og ríkja sem sökkva í sæ af sömu sökum er ekki sterk. Um þetta er fjallað í nýútgefinni bók eftir Snjólaugu Árnadóttur, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, sem stundað hefur rannsóknir í hafrétti og þjóðarétti og á sæti í alþjóðlegri nefnd á því sviði. Bjarni Rúnarsson ræddi við Snjólaugu Árnadóttur.
Gagnrýni ríkisstjórnarinnar á framkvæmd á söluna á Íslandsbanka kom Bankasýslu ríkisins á óvart. Útboðið hafi verið unnið í nánu samneyti við stjórnvöld.
Orrustan um Donbas-svæðið er hafin að sögn Úkraínuforseta og rússnesk stjórnvöld segjast hafa ráðist á meira en þúsund skotmörk frá því stórsókn rússneska hersins hófst seint í gær.
Ísland liggur vel við höggi í útbreiðslu fuglaflensu vegna legu sinnar. Þetta segir doktor í líffræði.
Hagvöxtur í heiminum verður minni en gert var ráð fyrir í upphafi ársins samkvæmt spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Innrásinni í Úkraínu er um að kenna.
Akureyrarvöllur, þar sem kappleikir hafa verið háðir í rúmlega 70 ár fær brátt nýtt hlutverk. Formaður skipulagsráðs vonar að ný bæjarstjórn efni til hugmyndasamkeppni um nýtingu lóðarinnar.
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson.
Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson.
Fréttaútsendingu stjórnaði Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

134 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

23 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

41 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners