Spegillinn

Skipsstrand, riða og Alþýðusambandsþing


Listen Later

Spegillinn 18. apríl 2023.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Þorbjörn Gísla Kolbrúnarson. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
Erlent flutningaskip strandaði við Ennishöfða á Húnaflóa í dag. Magnús Pálmar Jónsson stýrimaður og sigmaður hjá Landhelgisgæslunni segir áhöfnina bera sig vel og ekki þörf á að flytja fólk frá borði. Ekki verður reynt að losa skipið í kvöld. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Magnús.
Búið er að lóga öllu fé á bænum Syðri-Urriðaá í Miðfirði og setja hræin í lekahelda gáma segir Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir, urðunarstaður finnist vonandi fljótlega. Benedikt Sigurðsson talaði við hana.
1.373 börn fengu leikskólapláss á borgarreknum leikskólum Reykjavíkur í fyrsta hluta, úthlutunar ársins. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar telur þetta á pari við síðustu misseri. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við Helga.
Mörg hundruð manns koma að undirbúningi fundar Evrópuráðsins sem verður í Reykjavík í maí segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir verkefnisstjóri alþjóðamála hjá forsætisráðuneytisins. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við Rósu.
Kristinn starfsmaður bandarísku póstþjónustunnar USPS krefst þess að fá að halda hvíldardaginn heilagan. Krafa hans verður tekin fyrir í hæstarétti Bandaríkjanna í dag, og gæti niðurstaða hans haft mikil áhrif á réttindi starfsmanna á vinnustöðum. Róbert Jóhannsson tók saman.
------------
Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands er nokkuð bjartsýnn að á þingi þess í næstu viku takist félögum að ná saman þó að vissulega sé ágreiningur um ýmis mál hjá sambandinu. Öllu skipti ap ASÍ geti sem heild unnið saman að brýnum verkefnum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.
Það styttist í fund Evrópuráðsins í Reykjavík. Fundinum fylgir mikil öryggisgæsla og umstang, Bjarni Rúnarsson sagði frá og rifjaði upp leiðtogafundinn í Höfða 1986. Glefsur með Ingva Hrafni Jónssyni, Gunnari Kvaran og Ómari Ragnarssyni.
Leiðtogar Skoska þjóðarflokksins voru boðaðir til fundar í skyndi eftir að lögregla greindi frá því 71 árs karlmaður væri í haldi vegna rannsóknar á fjármálum og fjármögnun flokksins. Colin Beattie gjaldkeri flokksins var reyndar ekki nafngreindur, en engin fór um grafgötur um að hann væri sá handtekni. Ásgeir Tómasson tók saman. Nýkjörinn leiðtogi Skoska þjóðarflokksins og fyrsti ráðherra heimastjórnarinnar, Humza Yousaf, varð klumsa við fréttirnar.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

28 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners