Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred
Tveir karlmenn á þrítugsaldri eru í haldi lögreglu eftir skotárás í Grafarholti í nótt. Karl og kona særðust í árásinni. Ólöf Rún Skúladóttir ræddi við Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjón á rannsóknarsviði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hluthafar stóru viðskiptabankanna gætu fengið samanlagt nærri fimmtíu milljarða króna í arð samkvæmt ársuppgjörum þeirra. Íslandsbanki birti ársuppgjör sitt í dag, síðastur bankanna þriggja.
Allt að þriggja sólarhringa bið getur verið eftir niðurstöðum úr PCR-sýnatöku vegna mikils álags. Tæplega 5 prósent Akureyringa eru nú með covid. Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við Inga Stellu Pétursdóttiu yfirmann rannsóknardeildar Sjúkrahússins á Akureyri og Sigríði Dagnýju Þrastardóttur verkefnastjóra Covid á Akureyri
Borgaryfirvöld í París hafa sett bann á að svokölluð frelsislest vörubílstjóra mæti til borgarinnar til að loka götum í mótmælaskyni gegn sóttvarnaraðgerðum. Mótmælin eru rakin til svipaðra aðgerða bílstjóra í Kanada. Hallgrímur Indriðason sagði frá.
---------------
Rannsókn á skotárás sem gerð var í Grafarholti í nótt miðar vel. Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að ofuráhersla hafi verið lögð á að finna árásarmennina fljótt. Karl og kona særðust í árásinni. Fleiri voru á vettvangi en ekki er talið að árásin hafi beinst að öðrum en þeim sem urðu fyrir skotum. Ólöf Rún Skúladóttir ræddi við hann.
Lágir stýrivextir hefðu ekki gengið til langs tíma litið og hækkun stýrivaxta hefur góð áhrif á sparnað fólks segir Gylfi Zoega prófessor í hagfræði. Hann segir ekki rétt að verðbólgan sé innflutt. Bjarni Rúnarsson ræddi við hann.