Spegillinn

Slakað á grímuskyldu


Listen Later

Gengið verður lengra í tilslökunum á grímuskyldu en ríkisstjórnin tilkynnti eftir fund sinn í gær. Deild á Landspítala var lokað í dag eftir að sjúklingur greindist með COVID-19.
Smit hafa greinst í nokkrum grunnskólum síðustu daga eftir að skólastarf hófst að nýju. Reglum um sóttkví í skólastarfi var nýlega breytt, svo færri þurfi að fara í sóttkví þegar smit koma upp.
Maðurinn sem var skotinn og særður af lögreglu á Egilsstöðum í gær er á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem líðan hans er stöðug. Rannsókn málsins er á frumstigi.
Rúta með þrjátíu manns festist í Krossá við Þórsmörk í dag. Björgunarsveitarmaður sem tók þátt í aðgerðum segir stöðuna hafa verið tvísýna um tíma.
Framkvæmdir við útsýnispallinn á Bolafjalli við Bolungarvík hafa verið stöðvaðar þar sem byggingarleyfi hefur enn ekki verið gefið út fyrir framkvæmdinni.
Bandaríkjaher er undirbúinn fyrir frekari árásir í Kabúl fyrir mánaðamót. Ríki heims eru nú á lokametrum brottflutnings fólks frá Afganistan
Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Dana og framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gagnrýnir ákvörðun Bandaríkjamanna um að kalla her sinn frá Afganistan. Hann er einn margra málsmetandi á Vesturlöndum sem er reiður Joe Biden Bandaríkjaforseta. Bogi Ágústsson segir frá.
Ekkert samræmt verklag er til á landsvísu um hvernig heilbrigðisstofnanir eigi að taka á móti þolendum heimilisofbeldis. Starfshópur leggur til einfalt áhættumat fyrir heilbrigðisstarfsfólk um hvenær eigi að kalla til lögreglu, til að mynda þegar þolandinn hefur verið tekinn kyrkingartaki eða er barnshafandi. Ragnhildur Thorlacius sagði frá og talað við Drífu Jónasdóttur.
Ef verkfall flugumferðarstjóra á Keflavíkurflugvelli skellur á á þriðjudag gæti það haft áhrif á tæplega sex þúsund farþega Icelandair. Upplýsingafulltrúi félagsins segir að nú sé unnið að fyrirbyggjandi aðgerðum sem fela í sér að bjóða flugfarþegum að seinka eða flýta flugi um allt að tvo daga. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Ásdísi Ýr Pétursdóttur og Arnar Hjálmsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners