Eina slökkviskjólan sem Landhelgisgæslan hefur til umráða og hefur nýst vel í baráttu við gróðurelda, er ónýt og slökkvigeta úr lofti er því engin. Almannavarnir hafa miklar áhyggjur af stöðunni, en vonast er til að hægt sé að fá aðra skjólu lánaða frá Svíþjóð.
Erfitt er að segja til um hvenær óvissuástandi vegna gróðurelda lýkur. Slökkviliðsstjóri hvetur landsmenn til að hafa varann á í kringum gróður.
Atvinnuleysi dróst saman í apríl og var 10,4 prósent. Langtímaatvinnulausum heldur þó áfram að fjölga.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsir yfir áhyggjum af afbrigði kórónuveirunnar sem geisað hefur á Indlandi síðustu mánuði. Það er talið mun meira smitandi en fyrri athuganir gáfu til kynna.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag vinnuveitanda til að greiða transmanni laun sem hann átti inni vegna veikinda eftir aðgerð, sem væri óaðskiljanlegur hluti transferils hans. Formaður Samtakanna 78 fagnar niðurstöðunni.
Örfá leiðangursskip með nokkur hundruð farþega sigla við Íslandsstrendur í sumar. Ekki er von á stórum mörg þúsund manna skemmtiferðaskipum, það verður í fyrsta lagi í haust. Eigandi ferðaskrifstofunnar Atlantik býst við að hafa í ár 5-7 prósent af þeim tekjum sem fyrirtækið hafði árið 2019, en er þó þakklátur fyrir eitthvað, eftir tekjuleysi í rúmt ár. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Gunnar Rafn Birgisson einanda ferðaskirfstofunnar Atlantik.
Kafbátaeftirlit bandaríska sjóhersins á Norður- Atlantshafi sem stjórnað er frá Keflavík hefur aukist talsvert á síðustu árum. Í fyrra voru P-8 vélar hersins við kafbátaleit í 173 daga, miðað við 21 dag árið 2014 þegar kafbátaeftirlit hófst hér á nýjan leik. Athygli hefur vakið að talsvert umferð herflugvéla hefur verið síðustu daga um Keflavíkurflugvöll.
Eftir bæjar- og sveitastjórnarkosningar og aðrar svæðisbundnar kosningar hefur Íhaldsflokkurinn styrkt stöðu sína en þá blasir við glíma við skosku stjórnina um sjálfstætt Skotland. Verkamannaflokknum vegnaði ekki vel og er nú í gamalkunnri stöðu: leiðtoginn umdeildur og heiftug átök innan flokksins. Nema í Wales, þar sem gamalreyndur leiðtogi Verkamannaflokksins sýnir að það er hægt að ná árangri án þess að vera það sem kallast ?heillandi leiðtogi.? Sigrún Davíðsdóttir segir frá.