Spegillinn

Snjóflóðahætta, skipulagsmál og vistheimilismál


Listen Later

Spegillinn 8. febrúar 2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason.
Átta íbúðarhús voru rýmd á Patreksfirði í dag vegna snjóflóðahættu. Varðskipið Freyja er á leiðinni vestur og verður til taks.
Forseti Frakklands vonast til að málamiðlun finnist með Rússum um lausn á Úkraínudeilunni. Stefnt er að því að leiðtogar Rússa, Frakka og Þjóðverja fundi á næstunni um stöðuna.
Menningarmálaráðherra boðar að Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði. Forsætisráðherra segir þá aðgerð ekki mega skerða stöðu RÚV.
Formaður Flokks fólksins skorar á atvinnuveganefnd Alþingis að taka frumvarp hennar um bann við blóðmerahaldi til umfjöllunar. Fjöldi umsagna hefur borist um frumvarpið.
Um 1.200 manns hafa fengið sanngirnisbætur vegna illrar meðferðar á vistheimilum á seinustu öld. Hátt í fjórir milljarðar hafa verið greiddir í bætur. Peningar græða þó ekki þau sár sem fólk hlaut að mati umsjónarmanns sanngirnisbóta.
Lengri umfjöllun
Í Speglinum í gær var rætt við Ólaf K. Nielsen formann Fuglaverndar, en hann hefur ásamt fjömörgum öðrum gagnrýnt áform Reykjavíkurborgar um landfyllingu í Grófavík í Skerjafirði. Landfyllingin er fylgifiskur fyrirhugaðrar 1300 íbúða byggðar vestan við suðurenda Reykjavíkurflugvallar. Landfyllingu verður á ríflega 700 metra löngum kafla, sem næði 100 metra út í sjó. Í frummatsskýrslu sem verkfræðistofan Efla gerði fyrir Reykjavíkurborg kemur fram að framkvæmdin hefði talsverð neikvæð áhrif á fuglalíf og verndarsvæði og verulega neikvæð áhrif á gróður, strand- og sjávarlífríki. Pawel Bartoszek er formaður Skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Kristján Sigurjónsson ræddi við hann.
Frá því að Breiðavíkurmálið kom upp fyrir 15 árum hafa hátt í fjórir milljarðar verið greiddir í sanngirnisbætur til þeirra sem bjuggu við slæman kost og meðferð á vistheimilum á vegum ríkisins og sveitarfélaga. Um 1.200 manns hafa fengið bætur. Peningar duga þó ekki til að græða sár þeirra sem máttu þola illa meðferð í æsku. Í gær var rætt við Bárð R. Jónsson, sem er einn Breiðavíkurdrengjanna sem stigu fram og sögðu sögu sína fyrir 15 árum. Frá þeim tíma hafa fjöldamörg mál komið fram þar sem upp komst um slæma meðferð á börnum og fullorðnum á seinustu öld. Yfirleitt dvaldi fólk á þessum heimilum af illri nauðsyn og var komið þar fyrir vegna vandamála sinna, stórra og smárra.
Bjarni Rúnarsson ræddi við Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmann sanngirnisbóta. Hann annaðist bótagreiðslur í Breiðavíkurmálinu og einnig í fleiri sambærilegum málum.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners