Spegillinn 20.01.2020
Snjóflóðið braut stálmastur: Ekki er tímabært að segja til um rúmmál snjóflóðanna á Flateyri. Mest er flóðið um fimm metra djúpt. Svokallað skopplag, sem er ofan á þéttum kjarna snjóflóðsins, fór yfir varnargarðana. Fjögurra metra hátt stálmastur sem var uppi á garðinum brotnaði. Krafturinn sem þarf til þess jafngildir þyngd allt að 10 fólksbíla. Rætt við Kristínu Mörtu Hákonardóttur snjóflóðaverkfræðingur að það sé mikið áhyggjuefni.
Tveir íbúafundur um snjóflóðin á Flateyri og Súðavík: Íbúafundur stendur nú yfir á Flateyri og annar verður haldinn í Súðavík í kvöld vegna vegna snjóflóðanna sem féllu í liðinni viku. Þar eru mættir fulltrúar frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands, lögreglustjóranum á Vestfjörðum og velferðarsviði Ísafjarðarbæjar. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir fréttamaður er á staðnum
Fjölmörg alvarleg slys: Mikið álag hefur verið á rannsóknarnefnd samgönguslysa undanfarið vegna fjölmargra alvarlegra umferðarslysa sem urðu á fyrstu dögum ársins. Rætt við Sævar Helga Lárusson, rannsóknarstjóra hjá nefndinni
Norska ríkisstjórnin sprakk í dag þegar Framfaraflokkurinn fór úr stjórninni vegna andstöðu við að flytja norska móður og börn hennar til Noregs. Hún er bendluð við hryðjuverkastarfsemi í Sýrlandi. Arnar Páll Hauksson ræddi við Gísla Kristjánsson í Noregi
Kínversk stjórnvöld hafa staðfest að ný veira, sem nýlega greindist í landinu, getur borist manna á milli. Sóttvarnalæknir telur ekki tilefni til sérstakra viðbragða hér. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Þórólf Guðnason sóttvarnarlækni.
Samningaviðræður um framtíðarsamband Breta og Evrópusambandsins hefjast eftir mánaðamótin. ESB hefur verið að ræða og kynna sín samningsmarkmið en markmið Breta eru enn óljós. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela tekur þátt í Davos ráðstefnunni í Sviss þrátt fyrir að vera í ferðabanni heima fyrir.
Íslenskir karlar hafa fitnað mjög hratt eftir að sala bjórs var leyfð að nýju, árið 1989. Íslendingar eru nú þyngstir norrænna þjóða.