Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að tjón fyrritækja af völdum verkfalla, sem boðuð hafa verið, geti hlaupið á hundruðum milljóna á dag. Hann segir að aðgerðirnar séu árás á ferðaþjónustuna og allt samfélagið.
Verkfallsaðgerðir VR og Eflingar ná til 2.350 félagsmanna, sem greiða atkvæði um sex verkföll á tugum vinnustaða. Einnig verða greidd atkvæði um fjölmargar aðgerðir sem Efling boðar að auki.
Það felst í því mikil eyðilegging, þegar verk eftir myndlistarmenn eru fölsuð. Þetta segir formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna.
Sjávarútvegsráðherra brýtur lög ef hann úthlutar ekki makrílkvóta eftir reglugerð, en ef hann fer að lögum gæti hann skapað ríkinu skaðabótaskyldu.
Forseti Alþingis segir það mikil vonbrigði að harkalegt bakslag hafi komið í traust til Alþingis
VR og Efling boða sex staðbundin verkföll sem munu bitna á 40 hótelum og öllum hópbifreiðafyrirtækjum á félagsssvæði félaganna tveggja. Efling boðar frekari aðgerðir sem mun standa frá 18. mars til 30. apríl. Áætlun félaganna þýðir að einhvers konar aðgerðir verða alla daga frá 18. mars fram að 1. maí en þá á að hefjast útímabundin vinnustöðvun. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.
Ungt fólk hefur áhyggjur af loftslags- og umhverfismálum og vill að gripið verði til ráðstafana sem duga til framtíðar. Um hinn vestræna heim hefur myndast hreyfing ungs fólks, skólafólks sem vill aðgerðir strax. Segja má að málflutningur hinnar 16 ára Gretu Thunberg frá Svíþjóð á Loftslagsráðstefnunni í Katowice í Póllandi í desember eigi stóran þátt í þessari bylgju. Dágóður hópur skólakrakka á öllum aldri safnaðist saman í annað sinn á Austurvelli í Reykjavík í dag og skoraði á íslensk stjórnvöld að taka til hendinni. Spegillinn settist niður með þeim Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur framhaldsskólanema, Sigurði Thorlacius frá ungum umhverfissinnum og Elsu Maríu Guðlaugs Drífudóttur háskólanema og ræddi við þau um framtíðarsýn ungs fólks.
Það eru hliðstæðar aðstæður á fasteignamarkaðnum víða um heim, alltof mikið framboð af lúxusíbúðum í stórborgum. Það græðir enginn á hálftómum draugaturnum, sama hvort er í miðborg London eða Reykjavíkur. Sigrún Dvíðsdóttir segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Davíð Berndsen.