Viðvörun hefur verið gefin út vegna vonskuveðurs sem gengur yfir landið í kvöld og nótt. Fólk er hvatt til að hreinsa frá niðurföllum.
Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um þrjú prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um 2 prósentusting en fylgi annarra flokka breytist lítið.
Prófessor í krabbameinslækningum segir tölur OECD, sem sýni að dánartíðni vegna brjóstakrabbameins sé hæst á Íslandi, gefi ekki rétta mynd. Lífslíkur séu þvert á móti mestar hér.
Þrír leiðtogar aðskilnaðarsinna í Katalóníu, sem sitja í gæsluvarðhaldi, ætla að vísa máli sínu til Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Þetta er óstöðug mynt, fjármálaeftirlitið varar við henni en áhættusæknir fjárfestar hrífast. Á rafeyrir eftir að sigra heiminn eða er þetta bóla sem springur? Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og ræðir Gísla Kr. Katrínarson og Björgvin Inga Ólafsson.
Umsjón: Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður. Magnús þorsteinn Magnússon