Reimar Pétursson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir það fátítt í nágrannalöndunum að ráðamenn fari ekki að tillögu hæfnisnefndar við skipan dómara.
Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í morgun þegar fólksbíll og flutningabíll rákust saman.
Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni segir að umferðarþungi sé kominn langt fram úr hófi. Í fyrra jókst umferð um tæp ellefu prósent frá árinu 2016.
Heilbrigðisráðherra og umhverfisráðherra úr flokki Vinstri grænna vilja bregðast við svifryksmenguninni sem varð um áramótin. Dómsmálaráðherra úr Sjálfstæðisflokki segir að veðurskilyrði á nýársnótt hafi verið sérstök, horfa verði til þess. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Sigríði Á Andersen, Guðmund Inga Guðbrandsson og Svandísi Svavarsdóttur.
Að minnsta kosti 10 flokkar stefna að því að bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í maí. Arnar Páll Hauksson.
Manchester City stefnir á heimsyfirráð með olíupeningum úr einræðisríkinu Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Eigendurnir kaupa leikmenn og heilu fótboltafélögin um heim allan og breyta þeim í bláklædd City. Manchester City hefur ekki tapað leik í vetur, er langefst í deildinni og hefur sýnt fádæma yfirburði. Pálmi Jónasson.
Spegillinn 3. Janúar 2018.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.