Spegillinn 03.12.2018
Umsjón: Pálmi Jónasson
Forseti Alþingis bað þjóðina alla afsökunar á óráðshjali nokkurra þingmanna. Sérstök siðanefnd hefur verið virkjuð til að hefja rannsókn á þessu siðabrotamáli.
Siðfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri segir að ekki þurfi tilvísun frá forsætisnefnd til að lögregla hefji rannsókn á Klausturmálinu. Sterkar vísbendingar séu um það í upptökunum að lög hafi verið brotin við skipan sendiherra.
74-91% landsmanna telja að þingmennirnir af Klaustri eigi að segja af sér þingmennsku, samkvæmt nýrri könnun.
Nýtt frumvarp um launahækkanir kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna auðveldar ekki kjaraviðræður, segir forseti Alþýðusambandsins. Það hafi komið á óvart að ekki hefði verið undið ofan af ákvörðunum kjararáðs.
Ákæruvaldið fer fram á átta til tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, vegna peningaþvættis.
Lengri umfjallanir:
Sigurður Kristinsson siðfræðingur og prófessor við háskólann á Akureyri segir að ekki þurfi tilvísun frá forsætisnefnd til að lögregla hefji rannsókn á Klausturmálinu. Sterkar vísbendingar séu um það í frásögn Gunnars Braga Sveinssonar að lög hafi verið brotin við skipan sendiherra. Sigurður var í starfshópi Starfshópi um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu sem skilaði skýrslu til forsætisráðherra í september. Eins og kom fram í fréttum ákvað forsætisnefnd Alþingis að hefja skoðun á Klausturmálinu sem mögulegs siðabrotamáls. Steingrímur J Sigfússon, forseti Alþingis kynnti það við upphaf þingfundar í dag og bað þjóðina um leið afsökunar.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Xi Jinping, forseti Kína sömdu um vopnahlé í viðskiptastríði landanna, á leiðtogafundi G20-ríkjanna, stærstu iðnvelda heims, í Buenos Aires í Argentínu um helgina. Gengi hlutabréfa í Asíu hefur snarhækkað en viðskikptastríði stórveldanna er langt því frá lokið.
Samkvæmt heimildum Spegilsins er lausafjárþörf flugfélagsins Wow líklega vel á annað hundrað milljónir Bandaríkjadala. Ekkert varð úr kaupum Icelandair á Wow, meðal annars af því áreiðanleikakönnun á Wow leiddi í ljós að staðan var verri en haldið var. Indigo Partners, nýi fjárfestirinn í Wow, er nú á sama stað og Icelandair þegar fyrirhuguð kaup Icelandair á Wow voru tilkynnt. Ef Wow verður ekki lagt til verulegt fé virðast dagar Wow taldir.