Spegillinn 04.02.2019
Umsjón: Pálmi Jónasson
Mörg af stærstu ríkjum Evrópu lýstu í dag yfir stuðningi við Juan Guaidó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela, í valdabaráttu við Nicolás Maduro forseta. Trump Bandaríkjaforseti útilokar ekki að beita hervaldi til að koma Maduro frá.
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar telur að ef veggjöld verði innheimt í jarðgöngum sem þegar hafa verið tekin í notkun, þyrfti einnig að taka upp veggjöld á öðrum samgöngumannvirkjum eins og Miklubraut í Reykjavík. Umræða um fyrirhuguð veggjöld sé skammt á veg komin.
Mengun frá útblæstri bíla nálgast heilsuverndarmörk í Reykjavík. Heilbrigðisyfirvöld hvetja fólk til að nota einkabílinn minna.
Vonskuveður verður á sunnanverðu landinu á morgun og hefur Veðurstofan gefið út appelsínugula viðvörun á Suðurlandi. Verst verður veðrið undir Eyjafjöllum og Vestmannaeyjum.
Norskir loðdýrabætur telja að bætur frá ríkinu verði að vera rúmlega 32 milljarðar ef ákveðið verður að leggja loðdýrarækt í landinu niður. Norska ríkisstjórnin stefnir að því að loðdýrabúsakpur verði bannaður frá 2025.
Lengri umfjöllun;
Nicolás Maduro, forseti Venesúela, útilokar ekki borgarastyrjöld í landinu og segir að Donald Trump verði blóðugur upp að öxlum ef Bandaríkin skipta sér af innanríkismálum landsins. Venesúela verði nýtt Víetnam fyrir Bandaríkin. Maduro varð ekki við kröfu Evrópusambandsins um að halda nýjar forsetakosningar í landinu og í dag hafa mörg Evrópuríki viðurkennt Juan Guaido, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem forseta landsins til bráðabirgða. Pálmi Jónasson tók saman.
Norskir loðdýrabændur vilja fá yfir 32 (tveggja) milljarða króna bætur frá ríkinu ef greinin verður lögð niður. Samkvæmt stjórnarsáttmála norsku ríkisstjórnarinnar er stefnt að því að loðdýrarækt verði hætt 2025. Boð ríkisstjórnarinnar hljóðar upp á rúmlega 5 milljarða króna bætur. Arnar Páll Hauksson fjallaði um málið í Speglinum.
Sagan að baki skuldatryggingaviðskipta Kaupþings í samstarfi við Deutsche Bank varpar ljósi á vinnubrögð Deutsche Bank. Það er upplýsandi fyrir önnur mál sem Deutsche er viðriðinn, til dæmis peningaþvætti Danske Bank. Sigrún Davíðsdóttir tók pistilinn saman.