Spegillinn 04.12.2018
Umsjón: Pálmi Jónasson
Siðanefnd Alþingis hefur óskað eftir því að fá hljóðupptökur frá Klausturfundi sex þingmanna til að leggja mat á hvort þeir hafi mögulega brotið siðareglur. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir að skömmin sé sexmenninganna og þeir eigi að axla ábyrgð.
Sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu segir að samræður alþingismannanna séu tákn um það sem kallað hefur verið yfirráðakarlmennska eða eitruð karlmennsla. Íslenskt samfélag hafi gefist upp á slíkum viðhorfum.
Þremur af hverjum fjórum þykir réttlætanlegt að fara í verkföll til að knýja á um bætt starfskjör. Yfir helmingur fólks er tilbúinn að fara í verkfall samkvæmt nýrri könnun.
Samgönguráðherra vonar að Alþingi samþykki tillögur um að niðurgreiða flugfargjöld íbúa á landsbyggðinni. Þá sé það eðlilegt skref að efla varaflugvellina þrjá fyrir millilandaflug, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöll.
Lengri umfjöllun:
Tryggvi Hallgrímsson sérfræðingur á Jafnréttisstofnu segir að íslenskt samfélag sé búið að gefast upp á viðhorfum sem endurspegluðust í samræðum alþingismannanna á Klausturbar. Þær séu tákn um það sem kallað hefur verið yfirráða karlmennska eða eitruð karlmennska. Ekki sé langsótt að tengja grófustu lýsingarnar og orðin sem þar fóru um við ofbeldi. Flestir kannast ekki við að svona orðfæri sé notað í karlahópi - en svo eru aðrir sem segja að þetta sé dæmigert karlatal sem oft er eigi sér stað t.d. í búningsklefum. Bergljót Baldursdóttir talaði við Tryggva Hallgrímsson.
Algjört hrun siðmenningar er við sjóndeildarhringinn. Loftslagsbreytingar af mannavöldum geta leitt til meiriháttar náttúruhamfara og gereyðingu stórs hluta náttúrunnar. Þetta sagði náttúrufræðingurinn heimsþekkti David Attenborough á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem var sett í Póllandi í gær. Pálmi Jónasson tók saman.
Andrúmsloftið í Breska þinginu í dag var rafmagnað þegar umræður hófust um úrgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Umræðunar eiga að standa í fimm daga áður en kemur að atkvæðagreiðslunni 11. desember. Sigrún Davíðsdóttir tók saman.