Spegillinn 05.02.2019
Umsjón: Pálmi Jónasson
Það verður hratt versnandi veður fram á kvöld og verst verður það á Kjalarnesi, við Hvalfjörð og í Öræfum, jafnvel staðbundið ofsaveður undir Eyjafjöllum og í Landeyjum.
Suðurlandsvegur á milli Hvolsvallar og Víkur hefur verið lokaður frá hádegi og síðdegis var veginum um Mosfellsheiði, Þingvelli og Lyngdalsheiði lokað vegna veðurs.
Meirihlutinn á Alþingi segir segir risavaxnar samgöngubætur felast í samgönguáætlun með upptöku veggjalda, borgarlínu og breytingum á innanlandsflugi. Minnihlutinn gagnrýnir allt of hraða málsmeðferð.
Nicolás Maduro, forseti Venesúela, hefur hótað Juan Guaidó, forseta þingsins fangelsi, haldi hann meintri valdaránstilraun til streitu. Í Speglinum verður fjallað ítarlega um Juan Guaidó.
Lengri umfjöllun:
Akitekt hefur ekki trú á smáhýsum sem almennri húsnæðislausn. Forstjóri Mannvirkjastofnunar segir að það að búa í smáu rými geti leitt til alvarlegs þunglyndis, jafnvel sjálfsvíga. Umhverfissálfræðingur varar við því að sveipa smáheimili of miklum ævintýraljóma en segir heldur ekki í lagi að fordæma þessa lausn á grundvelli persónulegra skoðana. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman.
Juan Guaidó er sjarmatröll sem hefur á undraskömmum tíma skotist á stjörnuhimininn í Venesúela og er nú viðurkenndur forseti landsins af flestum ríkjum heims, þar á meðal Íslandi. Hann er hugsjónamaður sem hertist í náttúruhamförum þar sem tugþúsundir létust og sór þess dýran eið að gera gagn fyrir land sitt og þjóð. Pálmi Jónasson með nærmynd af Guaidó.
Theresa May forsætisráðherra Breta fundar með Jean-Claude Juncker forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á fimmtudag um útgöngu Breta úr ESB. Hvað May hyggst bera upp er óljóst en breskir þingmenn og ráðherrar funda stíft í leit að nýrri samningsleið. Flest hefur verið reynt áður og útganga án samninga gæti blasað við. Líkur aukast á að Bretar reyni að fresta útgöngu en einnig frestun þyrfti að hafa einhvern tilgang og tímamörk. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.