Lögmenn Glitnis HoldCo og Stundarinnar og Reykjavík Media deildu um það fyrir rétti í dag hvort lögbann á fréttaflutning miðlanna ráðist af stjórnmálum eða öðrum álitaefnum.
Formaður Dómarafélagsins segir dómnefnd um umsækjendur um dómarastörf tryggja sjálfstæði við ráðningu dómara. Hún gagnrýnir ummæli dómsmálaráðherra um að nefndin hafi ekkert með sjálfstæði dómstóla að gera.
Ný rannsókn sýnir að starfsfólk leikskóla er ekki nægilega upplýst um einkenni og viðbrögð við fæðuofnæmi. Innan við helmingur leikskóla í Reykjavík er með viðbragðsáætlun ef barn með bráðaofnæmi fær ofnæmiskast.
Aukið rennsi er í Múlakvísl og breyting á lit árinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands
Óhætt er að segja að bók dagsins sé Fire and Fury eftir bandaríska blaðamanninn Michael Wolff, bókin um fyrsta ár Donalds Trumps í embætti forseta Bandaríkjanna. Hún kom út í Bandaríkjunum í dag, fjórum dögum áður en áætlað var og rauk strax upp í efsta sæti flestra bóksölulista vestanhafs.
Fimmtán hafa sýkst af mislingum á Stórgautaborgarsvæðinu í Svíþjóð og foreldrum 60 hvítvoðunga, var boðið að bólusetja þá, eftir að heilbrigðisstarfsmaður á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu greindist, sá hafði ekki komið inn á fæðingardeildina en verið í samskiptum við aðra heilbrigðisstarfsmenn sem þar störfuðu. Allt kapp er lagt á að hindra frekari útbreiðslu. Sóttvarnarlæknir segir að hér gæti komið upp sambærilegur faraldur.Bólusetningar séu lykillinn að því að verjast slíku en líka brýnt að heilbrigðisstarfsfólk og starfsmenn flugvalla, sem daglega eiga í samskiptum við mikinn fjölda fólks, séu bólusettir. Um fimm til tíu prósent starfsmanna Landspítalans eru það ekki. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Þórólf Guðnason.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að innistæðulausar launahækkanir hafi á síðustu 70 árum alltaf leitt til þess sama. Frá lýðveldisstofnun hafi á 7 til 10 ára millibili orðið gengisfall þar sem verðbólga eykst og kaupmáttur rýrnar hratt. Þetta muni gerast á nýjan leik ef haldið verði áfram á sömu braut