Spegillinn 05.03.2018
Formaður Samfylkingarinnar segir algerlega ófært að dómsmálráðherra sitji áfram í ljósi þeirrar réttaróvissu sem ríki um Landsrétt. Fullt tilefni sé til að skoða vantraust.
Enginn er augljós sigurvegari í ítölsku kosningunum en popúlistar náðu góðri kosningu og krefjast valda. Nú taka við erfiðar samningaviðræður og nýjar kosningar gætu verið á næsta leiti.
Flutningur erlends starfsfólks hingað til lands er meiri nú en nokkru sinni fyrr. Talið er þrettán prósent vinnandi fólks á Íslandi sé erlent.
Að minnsta kosti 50 almennir borgarar hafa fallið í loftárásum Sýrlandshers á Austur-Ghouta í dag.
Með réttum aðferðum er hægt að vinna bug á ólæsi, að mati prófessara við Háskólann í Þrándheimi og Háskólann í Reykjavík. Þeir nemendur sem ekki fá aðstoð heima hjá sér þurfi hjálp í skólanum.
Pálmi Jónasson fjallar um ítölsku þingkosningarnar
Sigrún Davíðsdóttir um ítölsku kosningarnar og andstöðu við ESB
Arnar Páll Hauksson ræðir við Hermund Sigmundsson um bætta lestrarkunáttu
Umsjónarmaður: Pálmi Jónasson