Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis.
Loftmengun hefur aldrei farið yfir heilsuverndarmörk við Kísilverið á Bakka. Þetta er niðurstaða Umhverfisstofnunar eftir fjórar eftirlitsferðir á jafnmörgum mánuðum. Niðurstöður mælinga voru kynntar á íbúafundi á Húsavík síðdegis.
Mikil ólga er á svæðum síta í suðurhluta Íraks. Átta hafa fallið í mótmælum í borginni Basra í þessari viku, þar sem stöðug mótmæli hafa verið að undanförnu.
Tvö tilfelli af lóasýki, eða afrískum augnormi, hafa komið upp hér á landi að undanförnu, í fólki sem dvalið hafði í Afríku
Á meðan fjöldi fólks hefur kveikt í Nike-skónum sínum í mótmælaskyni, fagna aðrir því að íþróttavöruframleiðandinn hafi gert bandarísku ruðningshetjuna Colin Kaepernick að andliti nýjustu herferðar sinnar. Þótt auglýsingin sé umdeild er þetta aðferð sem svínvirkar, segir prófessor við Listaháskóla Íslands.