Spegillinn 06.03.2018
Formaður Samfylkingarinnar sagði dómsmálaráðherra ekki treystandi til að fara méð málefni dómstóla í landinu og þess vegna verði hún að axla ábyrgð. Forsætisráðherra segist ekki sjá að rök með vantrausttillögu séu fullnægjandi.
Utanríkisráðuneytið kannar nú óstaðfestar fregnir þess efnis að íslenskur karlmaður hafi fallið í stríðsátökum í Sýrlandi fyrir um hálfum mánuði.
Grunur leikur á að efnavopnum hafi verið beitt í Austur Ghouta héraði í Sýrlandi í dag. Nær linnulausar sprengjuárásir hafa dunið á svæðinu undanfarinn hálfan mánuðinn.
Skordýrin eiga eftir að lifa okkur. Þetta segir skordýrafræðingur. Mannfólk grafi hratt undan skordýrum og þar með sjálfu sér.
Heimspekingur segir að horfa verði á umskurð drengja í mun víðara samhengi en gert sé í umskurðarfrumvarpinu. Múslimar á Íslandi vilja að efnt verði til fundar til að hlusta á sjónarmið þeirra og Gyðinga.
Arnar Páll Hauksson fjallar um efasemdir um umskurðarfrumvarpið
Sigrún Davíðsdóttir fjallar um viðbrögð Breta við Rússneskum njósnara
Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Erling Ólafsson um hnignun skordýra
Umsjónarmaður: Pálmi Jónasson