Sjúk ást: ofbeldissambönd unglinga. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Steinunni Ólínu Hafliðadóttur, sem stýrir átaksverkefni Stígamóta, og Aðalheiði Steindórsdóttur, sem varð fyrir ofbeldi í sambandi á unglingsárum.
Loksins, loksins hefur sjálfsagt einhver sagt í Þýskalandi í morgun þegar tilkynnt var að samkomulag hefði tekist um myndun nýrrar samsteypustjórnar, rúmum fjórum mánuðum eftir að Þjóðverjar kusu nýtt þing. Angela Merkel verður áfram kanslari. Bogi Ágústsson.
Það hitnar í Brexit-kolunum dag frá degi nú þegar næsta umferð samningaumræðna Breta við Evrópusambandið er að hefjast. Óánægjan með forystu Theresu May forsætisráðherra kraumar í Íhaldsflokknum og stjórninni. Í dag er fyrri fundardagur ráðherranefndar sem á að móta markmið samninganna við ESB en fyrirfram er ekki búist við lokaniðurstöðu. Sigrún Davíðsdóttir.
Framtíð nýrrar ríkisstjórnar í Þýskalandi er nú í höndum félaga í þýska Jafnaðarmannaflokknum, sem greiða á næstu vikum atkvæði um nýjan stjórnarsáttmála
Eftirlitsstofnun EFTA telur að íslenska ríkið hafi ekki staðið rétt að innleiðingu tilskipunar um endurskipulagningu fjármálastofnana
Veikindadögum starfsfólks á leikskóla í borginni fækkaði um rúmlega fjörtíu prósent eftir að vinnuvikan var stytt.
Hellisheiði hefur verið lokað. Skafrenningur og éljagangur er víða um land.