Spegillinn 8. febrúar 2018
Stöðugleikaframlög frá föllnu bönkunum til ríkisins hafa aukist um ríflega sjötíu milljarða króna að verðgildi. Fjármálaráðherra telur vel hafa tekist til við sölu þessara eigna.
Hellisheiði hefur verið lokað tíu sinnum það sem af er ári og það eru íbúar í Hveragerði margir mjög ósáttir við, bæjarstjóri þar á meðal. Vegagerðin segir breytt verklag við lokanir fjallvega hafa margsannað sig.
Danska ríkisstjórnin ætlar að setja lög sem banna íbúum tiltekinna hverfa að fá erlenda maka sína til landsins. Hverfin voru valin með hliðsjón af atvinnuleysi og tekjum
Ávinningur væri af því að seinka klukkunni um eina klukkustund. Þetta er mat starfshóps heilbrigðisráðherra.
Einn af hverjum fjórum öldruðum á hjúkrunarheimilum hér á landi fær sterk geðlyf án þess að vera með nokkra geðgreiningu, lyf sem jafnan eru notuð við geðklofa. Lyfin eru einkum gefin fólki með heilabilun sem er órólegt eða með hegðunarvanda. Mannréttindasamtök hafa gert alvarlegar athugasemdir við notkun þeirra Vestanhafs. Öldrunarlæknir segir lyfin geta virkað eins og spennitreyja. Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna segir þau einungis notuð þegar annað er fullreynt og þá í vægum skömmtum. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Maríu Fjólu Harðardóttur, framkvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna, og Pálma V. Jónsson yfirlækni öldrunarlækninga á Landspítalanum.
Síðustu daga hefur spunnist upp sérkennileg deila milli Norðmanna og Dana um hver eigi forngripi, sem gerðir voru í Noregi, en Danakonungur sló eign sinni á. Þar á meðal er mikið og fagurlega skreytt drykkjarhorn. Danir hafa skilað miklu til Íslands en engu til Noregs. Gísli Kristjánsson fréttaritari í Osló hefur fylgst með deilunni.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir