Spegillinn 09.04.2019
Umsjón: Pálmi Jónasson
Utanríkisráðherra segir að allt sem viðkomi þriðja orkupakkanum sé á forræði Íslendinga. Engin ákvörðun verði tekin um lagningu sæstrengs nema með samþykki Alþingis. Ráðherra mælti fyrir tillögu sinni um þriðja orkupakkann á Alþingi nú síðdegis.
Formaður Kennarasambands Íslands segir það óskhyggju að lífskjarasamningurinn verði grundvöllur nýrrar þjóðarsáttar. Hann segir útlitið ekki bjart fyrir komandi kjaraviðræður kennara.
Stjórnarandstaðan í Danmörku er með mun meira fylgi en ríkisstjórn Lars Løkkes Rasmussens samkvæmt könnunum.
Byltingarvarðliðið, úrvalssveit íranska hersins, er komið á lista Bandaríkjaforseta yfir hryðjuverkasamtök.
Tólf verslunarrými standa auð í hjarta miðborgar Reykjavíkur þar sem Skólavörðustígur og Laugavegur mætast. Formaður íbúasamtaka miðborgarinnar segir að lítil þjónusta sé fyrir íbúa miðborgarinnar og framkvæmdastjóri einnar elstu verslunarinnar segir að flóttann úr bænum megi rekja til hækkunar fasteignagjalda.
Vísindunum og möguleikunum til að hafa áhrif með erfðatækni fleygir fram en menn verða að velta fyrir sér afleiðingum og stíga varlega til jarðar - má segja að sé inntakið í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna þar sem velt er upp áskorunum og umhverfisógnum framtíðar. Þar á meðal eru möguleg áhrif nýrrar líftækni. Anna Kristín Jónsdóttir sagði frá.