Spegillinn 09.05.2019
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Framkvæmd EES samningsins kæmist í uppnám og mikil lagaleg og pólitísk óvissa myndi fylgja því að þriðji orkupakkinn yrði ekki samþykktur. Þetta kemur fram í áliti Alþjóða- og Evrópuréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík. Arnar Páll ræðir við Margréti Einarsdóttur, dósent við lagadeild HR
Bankastjóri Arion banka segir að rekstur bankans gangi vel þótt hagnaður á fyrsta ársfjórðungi hafi dregist saman um nærri helming á milli ára. Áhrif af gjaldþroti WOW og dómsmáli Valitors, séu skammtíma. Rætt við Stefán Pétursson starfandi bankastjóra Arion banka.
Forstjóri Landsnets segir að rafmagnsflutningskerfið í landinu sé of veikt til að geta mætt þeim breytingum sem fylgja orkuskiptum. Í nýrri kerfisáætlun fyrirtækisins er gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir 8 milljarða króna á ári næstu tíu árin. Bergljót ræðir við Guðmund Inga Ásmundsson, forstjóra Landsnets.
Borgarráð stefnir á að fækka bensínstöðvum um helming á næstu sex árum. Á lóðum bensínstöðvanna eiga að rísa íbúðir, hverfisverslanir eða önnur starfsemi.
Kynningarefni hefur verið búið til fyrir starfsmenn hótela og gistiheimila til að auka vitund þeirra um kynlífsmansal. Arnar Páll ræðir við Ingunni Þorvarðardóttur MPM meistararnema í verkefnastjórnun í HR
Ýmis farartæki og landbúnaðarvélar í eigu Roberts Mugabes, fyrrverandi forseta Simbabve, verða boðin upp um helgina til að grynnka á skuldum hans við hið opinbera.
Allur flutningur á grænmeti frá Sölufélagi garðyrkjumanna verður kolefnisjafnaður að fullu, segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Fyrirtæki verði að taka ábyrgð á umhverfinu