Viðræður fjögurra flokka um myndun meirihluta í Reykjavík ganga vel. Hvorki Píratar né Viðreisn ætla að gera borgarstjórastólinn að aðalatriði í viðræðunum.
Sjúkraflutningamaður á sérútbúnum bíl verður á Þingvöllum í sumar til að stytta viðbragðstíma ef slys verða í þjóðgarðinum.
Dregið hefur mjög úr atvinnuleysi í Bandaríkjunum og farið er að bera á skorti á verkafólki.
Fimmtíu til sextíu manns bætast að meðaltali á lista skjólstæðinga hjá heilsugæslustöðinni Firði í Hafnarfirði á mánuði.
Gagnaver gætu misst viðskiptavini og flugfélög, netverslanir og fleiri lent í vandræðum ef tafir verða á innleiðingu reglugerðar um nýja persónuverndarlöggjöf. Arnar Páll Hauksson.
Þeim sem nýta sér aðstoð Mæðrastyrksnefndar hefur fækkað úr ríflega 700 á viku niður í 300 síðan í hruni. Þeir eru hins vegar verr settir en fyrir nokkrum árum. Mæðrastyrksnefnd er 90 ára um þessar mundir. Kristján Sigurjónsson talaði við Önnu H. Pétursdóttur, formann Mæðrastyrksnefndar og Aðalheiði Fransdóttur framkvæmdastjóra.
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu vilja ekki framlengja rammasamning ríkisins við hjúkrunarheimili í núverandi mynd. Þau gagnrýna ósamræmi í kröfum eftirlitsaðila til þjónustunnar og segja fjárframlög ekki hafa tekið mið af auknum kostnaði. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Eybjörgu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra SFV og Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar.