Landskjörstjórn hefur úthlutað þingsætum og gefið út kjörbréf 63 þingmanna miðað við niðurstöðu endurtalningar í Norðvesturkjördæmi á sunnudag. Hún segir utan valdsviðs síns að taka afstöðu til hugsanlegra ágalla á framkvæmd kosninga. Það sé hlutverk Alþingis. Bjarni Rúnarsson sagði frá.
Willum Þór Þórsson, forseti Alþingis segir að nú taki við skipan undirbúningskjörbréfanefndar og að bera kjörbréfin undir það. Hann býst við að nýtt þing komi saman á mánudag. Kristín Sigurðardóttir ræddi við hann.
Fólki er ráðlagt að vera ekki á ferðinni í nágrenni við Keili og eins er mælst til að fólk hugi að forvörnum gegn jarðskjálftum á heimilum sínum. Enn sjást engin merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið við Keili. Magnús Geir Eyjólfsson rædd við Björn Oddsson jarðeðlisfræðing hjá Almannavörnum.
Það mjakast í áttina hjá formönnum ríkisstjórnarflokkanna sem hittust í dag. Þeir ætla að halda áfram að ræða um stjórnarsamstarf á mánudaginn. María Sigrún Hilmarsdóttir ræddi við formennina Bjarna Benediktsson, (D), Katrínu Jakobsdóttur (V) og SIgurð Inga Jóhannsson (B).
Drífa Snædal, forseti ASÍ segir starfsfólk flugfélagsins Play leita til sambandsins vegna kjara og aðbúnaðar. Birgir Jónsson, forstjóri Play segir ASÍ fara með órökstuddar dylgjur. Hildur Margrét Jóhannsdóttir ræddi við þau.
Fyrsta konunglega brúðkaupið í Rússlandi í 127 ár var haldið í dag. Ásgeir Tómasson sagði frá.
----------
Skjálftahrinan við Keili heldur áfram og svipar til þeirra sem var áður en tók að gjósa í Fagradalsfjalli. Skjáfltarnir eru á töluverðu dýpi en tengjast líklega kvikuhreyfingum þó að hún sé ekki farin að brjótast upp. Ragnhildur Thorlacius talaði við Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing um hrinuna.
Umræður um nýja ríkissstjórn mjakast áfram en flokkana greinir á í mörgu ekki síst um leiðir. Kristján Sigurjónsson rakti áherslur formannannna þriggja í heilbrigðismálum í umræðum fyrir kosningar. Brot úr forystusætum þar sem talað var við Bjarna Benediktsson, (D), Katrínu Jakobsdóttur (V) og SIgurð Inga Jóhannsson (B).
AUKUS samstarfið er Bretum kærkomið en Frökkum líst ekki á blikuna. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Björg Guðlaugsdóttir.