Spegillinn

Spegillinn 10. desember 2018


Listen Later

Sala Íslandsbanka til erlends banka er meðal tillagna í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem kynnt var í dag, einnig að varnarlína verði lögð svo bankakerfið geti ekki þanist út óhindrað. Birgir Þór Harðarson segir frá.
Álagið á Landspítalanum er Ölmu Möller landlækni áhyggjuefni, hún segir það sé stjórnvalda að greiða úr það vanti bæði starfsfólk á spítalann og hjúkrunarheimili. Kristín Sigurðardóttir ræðir við Ölmu.
Helga Þórisdótir, forstjóri Persónuverndar segir eðlilegt að stofnunin taki afstöðu til Klaustur-upptökunnar. Fjórir þingmenn Miðflokksins, sem sátu á Klausturbar hafa ráðið sér lögmann sem sendi Persónuvernd erindi um upptökuna. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við Helgu.
Meirihluti samgöngunefndar Alþingis ætlar að leggja til að veggjöld verði tekin upp um allt land og fjármagnið verði notað til vegagerðar. Þingmaður Pírata segir að það að ætla að keyra þetta í gegnum þingið þegar vika er eftir af þingstörfum sé merki um fljótfærni. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Jón Gunnarsson (D) formann samgöngunefndar og Björn Leví Gunnarsson (P).
Sveitarfélagið Norðurþing veitti hvalaskoðunarfyrirtækinu Norðursiglingu vaxtalaust og óverðtryggt lán fyrir vangoldnum farþegagjöldum. . Guðbjartur Ellert Jónsson sveitarstjórnarfulltrúi, sem var áður framkvæmdastjóri fyrirtækisins, telur að sveitarfélagið tapi á öðrum tug milljóna króna vegna þessa. Jón Þór Kristjánsson, ræðir við
------
Forsætisráðherra Bretlands frestaði í dag Brexit-atkvæðagreiðslu sem ráðgerð var í breska þinginu á morgun. Fyrirsjáanlegt var að samningurinn hefði verið felldur. Theresa May forsætisráðherra skipti um skoðun sólarhring fyrir atkvæðagreiðsluna en þvertók fram á síðustu stundu fyrir að henni yrði frestað. Sigrún Davíðsdóttir segir frá og heyrist í Theresu May.
Brottreknir þingmenn Flokks fólksins fá ekkert af framlögum ríkisins til flokksins. Hins vegar fá þeir rúma milljón hvor árlega í sérfræðiaðstoð. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Bandaríkin vinna markvisst gegn því að árangur náist á loftslagsráðstefnunni í Póllandi segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sem er nýkominn þaðan. Bandaríkin, Rússland og Sádi Arabía komu í veg fyrir að svört skýrsla vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytinar fengi þar hljómgrunn. Vonast er til að á ráðstefnunni verði hægt að breyta fyrirheitum sem gefin voru á loftslagsráðstefnunni í París fyrir þremur árum í áþreifanlegar aðgerðir. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Árna Finnsson.
Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir.
Tækni
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners