Spegillinn

Spegillinn 10. nóvember 2020


Listen Later

Spegillinn 10. nóvember 2020
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Nýtt bóluefni gæti kveðið kórónuveiruna í kútinn á næsta ári, segir Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Höskuldur Kári Schram ræddi við hann.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra segir rætt við Evrópusambandið til að tryggja að Íslendingar hafi sem besta stöðu þegar bóluefnið kemur á markað.
Forseti Frakklands hvetur Evrópuþjóðir til að grípa til skjótra og samræmdra aðgerða svo stöðva megi hryðjuverkaárásir sem hrellt hafa íbúa álfunnar árum saman. Ásgeir Tómason sagði frá.
Milljarða útgjöld sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir vegna Kyoto-bókunarinnar eru afleiðing þess að loftslagsmálin voru ekki tekin alvarlega í tíð fyrri ríkisstjórna segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra. Ísland hefur ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt Kyoto
Maður sem sat að ósekju í gæsluvarðhaldi í sjö mánuði grunaður um fíkniefnasmygl fékk í dag dæmdar sjö milljónir í bætur, ofan á fjórar milljónir sem ríkið hafði þegar fallist á að greiða honum. Stígur Helgason sagði frá.
Bætur til bænda sem þurfa að skera fé vegna riðu eru sagðar úreltar, verið er að skoða hvernig megi koma til móts við þá. Úlla Árdal ræddi við Unnstein Snorra Snorrason, framkvæmdastjóra landssamtaka sauðfjárbænda.
-----
Verð á ýmsum vörum hefur hækkað talsvert frá því að Covid-faraldurinn hófst og sömuleiðis eftirspurn. Frá því í mars hefur velta í byggingavöruverslunum aukist um rösklega 50% og um 20% í matvöruverslunum. Arnar Páll Hauksson ræddi við Auði Ölfu Ólafsdóttur hjá Verðlagseftirliti Alþýðusambands Íslands.
Í ár eiga aðildaríki Parísarsamningsins að uppfæra loforð sín í loftslagsmálum venga hans og standa skil á árangri og langtímastefnu um kolefnishlutleysi. Í dag var haldinn málfundur á vegum breska sendiráðsins og loftslagsráðs undir yfirskriftinni Loftslagsvænar framfarir í kjölfar COVID-19. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Halldór Þorgeirsson formann Loftslagsráðs.
Þekkjast þeir, gætu þeir orðið vinir? Þessar spurningar hljóma í Bretlandi þegar nýr forseti er kosinn í Bandaríkjunum. Og þá einnig núna, þegar Bretar hugleiða hvernig Bretlandi og bresku stjórninni farnist með Joe Biden sem forseta, ekki síst þegar þeir eru að hasla sér völl utan Evrópusambandsins. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners