Spegillinn

Spegillinn 10. september 2021


Listen Later

Það eru eðlileg mannréttindi að geta farið út undir bert loft, segir Maríanna Bernharðsdóttir, deildarstjóri fíknigeðdeildar Landspítalans, en það er ekki hægt á lokuðum geðdeildum við Hringbraut. Sunna Valgerðardóttir ræddi við hann.
Hlaup er hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði
Sex hundruð manns eru á biðlista eftir húsnæði hjá Öryrkjabandalaginu og á annað hundrað bíða árum saman hjá borginni. Það blasir við hverjum manni að svona gengur þetta ekki lengur með húsnæðismál fatlaðra, segir Grétar P. Geirsson, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.
Þýska lyfjaþróunarfyrirtækið BioNTech, sem þróaði Pfizer-bóluefnið gegn COVID-19, hyggst sækja um markaðsleyfi fyrir covid-bóluefni fyrir börn á aldrinum 5-11 ára fyrir miðjan október, meðal annars í Evrópu. Hildur Margrét Jóhannsdóttir sagði frá.
Framkvæmdastjóri bresku öryggisþjónustunnar óttast að valdataka Talibana í Afganistan auki á hryðjuverkaógn í Bretlandi. Undanfarin fjögur ár hafi rúmlega þrjátíu hryðjuverkaárásum verið afstýrt þar.
Ný skýrsla sýnir að hver íbúi Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps hefur greitt sem svarar um 50 þúsund krónum á ári með rekstri hjúkrunar- og dvalarheimilisins Nausts á Þórshöfn. Heimilið er í eigu sveitarfélagsins og hefur rekstrarsamning við Sjúkratryggingar Íslands. Jónas Egilsson, sveitarstjóri segir það neyðarbrauð að skila rekstrinum til ríkisins. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hann.
Íbúi bjargaði nágranna sínum þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð við Týsgötu í Reykjavík í dag. Töluverður reykur var í íbúðinni þegar slökkvilið kom á vettvang. Kristín Sigurðardóttir talaði við Hjálmar Hallgrímsson, varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Breiðablik er komið í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í fótbolta, fyrst íslenskra liða. Það ætti að hvetja önnur félög til að leggja enn meiri áherslu á kvennaboltann segir Helena Ólafsdóttir sparkspekingur við Einar Örn Jónsson fréttamann.
---------
Á geðdeild í Bretlandi, sem færð var úr aldargömlu húsnæði yfir í nýtt, fækkaði legudögum og dró úr árásargirni sjúklinga. Rannsóknir á arkitektúr sýna að náttúruleg birta og gott aðgengi að gróðri hefur áhrif á líðan sjúklinga segir Hildigunnur Sverrisdóttir, deildarforseti arkitektadeildar Listaháskólans.
Áratugum saman hefur kosninga- og stjórnmálahegðun íslenskra kjósenda verið könnuð í Íslensku kosningarannsókninni. Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, heldur utan um fjölmiðahluta þessarar stóru rannsóknar og þar er verið að bæta í, skoða miðlun pólitískra upplýsinga í ko
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners