Spegillinn 10.04.2019
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir
Yfirmaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vill ráða fjármálasérfræðinga til að rannsaka skipulagða glæpastarfsemi. Á þessu ári hafa verið kyrrsettar eignir í tengslum við starfsemina fyrir 70 milljónir. Talið er að allt að 20 skipulagðir brotahópar starfi hér á landi. Rætt við Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjón hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
Formaður Þroskahjálpar segir brýnt að stjórnvöld rannsaki aðbúnað fatlaðs fólks og annarra sem vistaðir voru í úrræðum á vegum stjórnvalda. Fatlaður maður hefur beðið þess í rúmt ár að stjórvöld svari ósk hans um rannsókn á Bitru. Rætt við Bryndísi Snæbjörnsdóttur formann Þroskahjálpar.
Bandaríkjastjórn biður Sameinuðu þjóðirnar að viðurkenna Juan Guaido, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela, sem réttmætan leiðtoga landsins. Koma verði Maduro forseta frá völdum.
Formaður Samtaka verslunar og þjónustu segir að leiðrétta þurfi álögur fasteignagjalda á atvinnurými. Fyrirkomulagið eins og það er nú sé galið og ekki hægt að bjóða atvinnulífinu upp á það. Rætt við Jón Ólaf Halldórsson, formann Samtaka verslunar og þjónustu
Leiðtogar Evrópusambandsins hittast á skyndifundi í kvöld til að ræða beiðni Breta um frekari frestun Brexit. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá
Elsti manngerði hellir á Íslandi er á Rangárvöllum. Þetta staðfesta niðurstöður fornleifarannsóknar sem kynntar voru í dag. Líklegt þykir að nautahellir sem getið er í Jarteinabók Þorláks helga biskups sé fundinn. Rætt við Kristborgu Þórsdóttur fornleifafræðing hjá Fornleifastofnun Íslands
Indversku þingkosningarnar eru ólíkar öllum öðrum þingkosningum. Þær hefjast á fimmtudag og standa í þrjátíu og níu daga. Níu hundruð milljónir Indverja hafa kosningarétt, fjórum sinnum fleiri en í Bandaríkjunum, næstfjölmennasta lýðræðisríki veraldar á eftir Indlandi. Pálmi Jónasson sagði frá