Spegillinn 10.janúar 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Áhættan af covid er miklu meiri hjá börnum en áhættan af bólusetningunni segir sóttvarnalæknir. Skipulögð bólusetning fimm til ellefu ára barna hófst í Laugardalshöll í dag og víðar um land.
Félagsmálaráðherra segir eðlilegt að ágreiningur sé um hvort rétt sé að draga orlofstíma frá launafólki ef sóttkvíardagar lendi á slíkum dögum. Ekki komi á óvart að málið komi til kasta dómstóla.
Lyfjastofnun Evrópu hefur tekið til athugunar lyf í töfluformi við Covid-sýkingu. Niðurstaða á að liggja fyrir innan nokkurra vikna.
Dalamenn vilja snúa við neikvæðri byggðaþróun og auka við atvinnutækifæri í sveitarfélaginu. Með það fyrir augum undirbýr Dalabyggð nú þátttöku í Brothættum byggðum hjá Byggðastofnun
Kaupfélag Skagfirðinga hefur ákveðið að hætta framleiðslu á jurtaprótíndrykknum Teyg og taka hann strax úr sölu. Það er vegna frásagna um ofbeldi af hálfu líkamsræktarþjálfarans Arnars Grants, sem þróaði drykkinn í samstarfi við KS.
Yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa lekið trúnaðarupplýsingum.
Hóstafaraldur geisar nú hjá hundum á höfuðborgarsvæðinu og tugir tilkynninga hafa borist Matvælastofnun síðustu daga um smitaða hunda.
Lengri umfjöllun:
Forseti ASÍ segir að hegðun stjórnenda í einkalífi geti litað ákvarðanir þeirra í stjórnun fyrirtækja. Hún segir viðbrögð fyrirtækja sem fimm áhrifamiklir menn sem sakaðir eru um kynferðisbrot störfuðu hjá, hafi verið svifasein. Ara Edwald var í gær sagt upp störfum sem framkvæmdastjóra Íseyjar útflutnings ehf., dótturfélags samvinnufélagsins Auðhumlu. Fjórir aðrir áberandi menn í viðskiptalífinu sem sakaðir hafa verið um kynferðisbrot hafa einnig stigið til hliðar eða hætt störfum sínum seinustu daga vegna ásakana um kynferðisbrot. Greint er frá því í Kjarnanum um helgina að miðillinn hafi heimildir fyrir því að þrír mannana hafi í lok seinasta árs fengið þau ráð frá almannatengli um að segja að þetta væri kjaftasaga og best væri að þegja málið af sér. Það gekk þó ekki því í seinustu viku sögðu þeir sig frá stjórnarmennsku og öðrum störfum sínum, hver á fætur öðrum. Bjarni Rúnarsson talar við Drífu Snædal forseta ASÍ og Karen Kjartansdóttur almannatengill. Nánar verður rætt við Karen í Speglinum á morgun.
Fagfólk hefur áhyggjur af því að heilsufarslegur ójöfnuður fari vaxandi á Íslandi. Efnaminna fólk með litla menntun fer almennt verr með sig, veikist frekar og lifir skemur og hugsanlegt að innbyggðir fordómar í heilbrigðiskerfinu gra