Spegillinn

Spegillinn 10.mars 2021


Listen Later

Spegillinn 10.mars 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Búist er við að allt starfsfólk Landspítala verði búið að fá fyrri skammt bóluefnis gegn COVID-19 nú í mánuðinum. 579 starfsmenn voru bólusettir í dag.
Kvikugangurinn á Reykjanesskaga heldur áfram að stækka og virðist færast nær yfirborði með degi hverjum. Skjálftavirkni mælist áfram.
Vinnumarkaðurinn færist nú í betra horf segir forstjóri Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi minnkaði í síðasta mánuði í fyrsta sinn síðan í maí.
Forsætisráðherra Bretlands vísar á bug fullyrðingum um að stjórnvöld hafi bannað framleiðendum að flytja bóluefni gegn COVID-19 til annarra landa.
Vonskuveður er um um norðan- og vestanvert landið. Ófært er á Holtavörðuheiði og Kjalarnesi.
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag einn í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Rauðagerði í Reykjavík um miðjan febrúar.
Tólf prósent landsmanna hafa miklar áhyggjur af jarðskjálftunum síðustu daga, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.
Lengri umfjöllun:
Yfir 60 prósent félagsmanna Bandalags háskólamanna sem svöruðu könnun þess vilja að BHM beiti sér fyrir því að réttur til að vinna heima verði tryggður í næstu kjarasamningum. Fjarvinnukönnun BHM var kynnt í dag og þar kemur ýmislegt athyglisvert í ljós, til að mynda að vel yfir helmingur aðspurðra taldi að einbeiting við vinnu og afköst væri meiri heima, en á vinnustaðnum. Vilhjálmur Hilmarsson er hagfræðingur BHM. Kristján Sigurjónsson talar við hann.
Atvinnuleysi dróst örlítið saman í febrúar sem er fyrsta sinn í mjög langan tíma. Drífa Snædal forseti ASÍ segir að stóra verkefnið framundan sé að fjölga störfum og koma fólki í virkni. Ásdís Kristjánsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA segir að efnahagsbati sé framundan en það muni taka tíma að vinna upp efnahagsslakann og endurheimta störf. Arnar Páll Hauksson talar við Ásdísi og Drífu.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners