Bára Halldórsdóttir, sem tók upp samtöl sex þingmanna á Klaustri 20. nóvember síðastliðinn, hefur verið boðuð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur á mánudag til að gefa skýrslu um upptökurnar.
Maður sem var vistaður í fangelsinu á Bitru fyrir þrjátíu árum telur mikilvægt að rannsaka aðbúnað fatlaðra þar. Stjórnvöld útiloka ekki að það verði gert.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður landssamtaka lífeyrissjóða telur að ef lífeyrissjóðir eigi að lána öllum sem standast mat óháð sjóðsaðild, geti það knúið sjóðina til að hækka vexti. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hann.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar segir mál Ágústs Ólafs Ágústssonar þingmanns Samfylkingarinnar alvarlegt og aðspurður um hvort það sé tilefni til afsagnar segir formaðurinn þingmaður verði að horfa í eigin barm. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Loga.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands þvertekur fyrir að samið verði aftur við bresk stjórnvöld um brotthvarf þeirra úr Evrópusambandinu. Birgir Þór Harðarson segir frá.
Hávaði mældist of mikill við húsveggi rúmlega 26.000 íbúða þar sem búa allt að 65 þúsund manns í nýbirtri úttekt Umhverfisstofnunar. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Gunnar Alexander Ólafsson sérfræðing hjá Umhverfisstofun.
Meirihluti samgöngunefndar og Samgönguráðherra vill breyta samgönguáætlun og heimila vegggjöld á stofnbrautum frá borginni og í helstu jarðgöngum til að fjármagna vegagerð. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Gunnarsson, starfandi formann samgöngunefndar og Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Gera má ráð fyrir að gjóskufall verði á öllu landinu ef gos verður í Öræfajökli eins og varð árið 1362. Þetta sýna niðurstöður nýs hættumats þar sem ennfremur má sjá að raflínur eyðileggjast á stóru svæði nálægt gosstöðvunum og vegasamgöngur rofna. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Sigrúnu Karlsdóttur, náttúruvárstjóra á Veðurstofu Íslands.