Spegillinn

Spegillinn 11. janúar 2022


Listen Later

Spegillinn 11.1. 2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður Mark Eldred.
Neyðarstigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna Covid 19. Fyrirtæki og viðbragðsaðilar virkja þá viðbragðsáætlanir sínar til að tryggja órofinn rekstur.
Mikil reiði er meðal Breta eftir að upplýst var að garðveisla hefði verið haldin í bústað forsætisráðherra, í maí árið 2020 þegar mjög strangar sóttvarnaráðstafanir voru í gildi og allar samkomur bannaðar. Boris Johnson, forsætisráðherra og eiginkona hans, Carrie Johnson, meðal voru meðal veislugesta.
Framkvæmdastjóri Strætó segist vera í áfalli vegna netárásar sem fyrirtækið varð fyrir. Tölvuþrjótar krefja Strætó um tæplega 72 milljóna króna lausnargjald.
Félagsmálaráðherra vill að hugað verði betur að breyttum vinnutíma í næstu kjarasamningum og að komið verði meira til móts við fólk með skerta vinnugetu.
Það er von á suðvestan hvassviðri á vestanverðu landinu í kvöld. Gul viðvörun tekur gildi í kvöld og aftur í fyrramálið. Útlit er fyrir hvassviðri meira og minna fram á fimmtudag.
Lengri umfjöllun:
Það hefur gustað um atvinnulífið undanfarið eftir að fimm menn sem eru áhrifamenn í stjórnum stórra fyrirtækja og áberandi í þjóðlífinu hrökkluðust frá störfum vegna ásakana um kynferðisbrot. Í málum sem þessum leita fyrirtæki og stjórnendur þeirra gjarnan til almannatengla.
Í Kjarnanum um helgina kom fram að miðillinn hefði heimildir fyrir því að almannatengill hefði ráðið þremur mannanna í lok nýliðins árs að segja að þetta væri kjaftasaga. Best væri að þegja málið af sér.
Karen Kjartansdóttir almannatengill segir að sú aðferð stjórnenda fyrirtækja að þegja af sér mál sé hverfandi. Mörg fyrirtæki hafi ákvæði í stefnu sinni um að hægt sé að víkja fólki frá ef orðspori fyrirtækisins er teflt í tvísýnu.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra vill sjá breytingar á vinnumarkaði á þann hátt að hugað verði betur að breyttum vinnutíma og að komið verði betur til móts við fólk með skerta vinnugetu. Spegillinn ræddi við Guðmund Inga, sem hefur vinnumarkaðsmál og húsnæðismál á sinni könnu, um ástand og horfur í þessum málaflokkum. Hann er ánægður með að viðsemjendur á vinnumarkaði vilji tala sem fyrst saman á nýju ári.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners