Forsætisráðherra segir það áhyggjuefni fyrir Íslendinga að Bandaríkjaforseti virðist breyta stefnu lands síns í því fjölþjóðasamstarfi sem Bandaríkin hafi byggt upp á liðnum áratugum.
Ekki er heppilegt að sníða hjúskaparlöggjöf að þeim konum sem eiga erfitt með að slíta sig lausar úr hjónabandi við ofbeldismenn. Þetta segir dómsmálaráðherra.
Fundur leiðtoga Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hefst í Singapúr að sjö klukkustundum liðnum. Búist er við að hæst beri kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreumanna, gegn því að efnahagslegum refsiaðgerðum verði aflétt og öryggi þeirra tryggt.
Mismikil þörf er fyrir þjónustu sérfræðilækna utan Landspítalans og því þarf faglegt mat á þörfina segir Rúnar Vilhjálmsson félagsfræðiprófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Miklar umræður hafa orðið um rammasamning sérfræðilækna við Sjúkratryggingar. Nýir læknar komast ekki inn á samninginn þar sem hann er í endurskoðun, þar á meðal læknar á sviðum sem sannanlega er mikil þörf fyrir. Kristján Sigurjónsson ræðir við Rúnar.
Kosturinn við að hafa sig lítið í frammi á nýafstöðnum G7 leiðtogafundi var að þá barst engin reiðigusa á Twitter frá Donald Trump Bandaríkjaforseta. En það hversu ósýnileg Theresa May forsætisráðherra Breta var á fundinum er ekki í takt við margítrekaðar yfirlýsingar um að Bretar séu að hverfa úr Evrópusambandinu til að láta meira og betur til sín taka á alþjóðavettvangi. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Nú á dögunum yfirtók þýski lyfja- og efnaframleiðandinn Bayer bandaríska stórfyrirtækið Monsanto. Bayer greiðir þúsundir milljarða króna fyrir og er samruninn einn af þeim stærstu á heimsvísu. Eftir miklu er greinilega að slægjast, en orðspor Monsanto er ekki þar á meðal. Björn Friðrik Brynjólfsson segir frá.
Umsjónarmaður: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Grétar Ævarsson